Veltan eykst hjá flestum tegundum verslana 11. júní 2009 16:14
Velta flestra tegunda verslana jókst í maí miðað við mánuðinn þar á undan. Þetta á þó ekki við um dagvöruverslun sem líklega skýrist af því að í apríl voru páskar og því eðlilegt að salan hafi minnkað aftur í maí. Verslun á þó langt í land með að ná sömu raunveltu og fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að velta í dagvöruverslun dróst saman um 6,9% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 11,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana 6,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru í maí hækkaði um 1,2% frá mánuðinum á undan. Á síðustu tólf mánuðum hækkaði verð á dagvöru um 20,2%. Sala áfengis minnkaði um 3,3% í maí miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en jókst um 23,2% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 27,4% í maí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Áfengissala minnkaði að magni til í maí miðað við sama mánuði í fyrra þrátt fyrir skyndilega aukna sölu þegar tilkynnt var um hækkun áfengisgjalds í lok mánaðarins. Fataverslun var 18,2% minni í maí á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 1,3% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hækkaði um 23,9% á einu ári. Minni samdráttur var í skóverslun. Þannig minnkaði velta skóverslunar um 8,8% í maí á föstu verðlagi en jókst um 9,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 19,7% á síðastliðnum 12 mánuðum. Í maí minnkaði velta í húsgagnaverslun um 44,2% á föstu verðlagi miðað við maí í fyrra og um 30,4% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 24,7% á síðastliðnum 12 mánuðum. Sala á raftækjum í maí dróst saman um 40,4% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og minnkaði um 15,8% á breytilegu verðlagi.
Mest lesið Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Viðskipti innlent Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Viðskipti innlent „Sporttöppum“ aftur komið fyrir Neytendur Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Viðskipti innlent Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Viðskipti innlent Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Viðskipti innlent Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Viðskipti innlent Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Viðskipti innlent Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Viðskipti innlent Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Samstarf Fleiri fréttir Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Niðurstöður álagningar birtar á fimmtudag Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Rökrétt að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum Rapyd sé íslenskt fyrirtæki með kennitölu frá 1983 Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum Hefja viðskipti með bréf í Alvotech í Stokkhólmi Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Sjá meira