Sjóvá tapaði 30 milljörðum 16. júlí 2009 17:45 Sjóvá. Reksturinn var með besta móti - sé frátalið fjárfestingaævintýri tryggingarisans.
Sjóvá tapaði þrjátíu milljörðum á síðasta ári samkvæmt tilkynningu frá skilanefnd Glitnis sem hefur yfirtekið rekstur Sjóvár. Þá segir ennfremur í tilkynningunni að vátryggingastarfsemin hafi gengið vel, fjárfestingar í fasteignatengdum verkefnum hafi hinsvegar verið þungbærar. Tilkynningin í heild sinni: Þrátt fyrir afleita afkomu Sjóvár á s.l. ári gekk vátryggingastarfsemi Sjóvár vel á árinu 2008 en fjárfestingar í fasteignatengdum verkefnum reyndust fyrirtækinu afar þungur baggi. Tap af rekstri samstæðu Sjóvá nam um 30.222 milljónum króna. Innleyst tap af fjárfestingarstarfsemi félagsins nam 14.014 milljónum króna og má rekja hluta af þessum tapi til niðurfærslu og matsbreytinga vegna fasteignatengdra fjárfestinga félagsins. Þá var á árinu gjaldfærð niðurfærsla að fjárhæð 16.748 milljarða vegna virðisrýrnunar á fjárfestingarverkefnum. Hækkuðu vaxtagjöld ársins töluvert frá fyrra á ári og má rekja þá breytingu til neikvæðrar þróun á gengi og vöxtum á árinu og námu vaxtagjöldin á tímabilinu um 6.171 milljónum króna. Heildareignir samstæðunnar samkvæmt efnahagsreikningi námu 97.463 millj. kr., þar af nam bókfært verð fjárfestingaverkefna 74.987 millj. kr. Heildarskuldir samstæðunnar námu 112.778 millj. kr. þar af er vátryggingaskuld samstæðunnar 23.584 milljónir kr. og var því bókfært virði eigin fjár samstæðunnar neikvætt um 15.315 millj. kr. í árslok 2008. Auk þeirrar alvarlegu fjárhagsstöðu samstæðunnar sem fram kemur í efnahagsreikningi þess hafði móðurfélagið gengist í fjárhagslega ábyrgð vegna erlends fjárfestingarverkefnis að jafnvirði 8.455 millj. kr. sem koma áttu til greiðslu nú í haust. Samsett hlutfall 100% Þrátt fyrir þetta var afkoma af vátryggingarstarfsemi Sjóvár góð á árinu og var samsett hlutfall samstæðunnar 100% samanborið við 104% árið 2007 , 114 % árið 2006 og 122% árið 2005. En hlutfallið er reiknað sem hlutfall af iðgjöldum ársins á móti tjónum ársins, rekstarkostnaði og endurtrygginga-kostnaði. Sjóvá hefur á undanförum árum verið að taka til í rekstri félagsins sem mun nýtast félaginu vel nú á erfiðum tímum og til áframhaldandi uppbyggingar félagsins. Iðgjöld ársins hjá samstæðunni jukust um rúm 5% á milli ára og voru iðgjaldatekjur um 11,2 milljarðar króna. Þá teljum við að staða félagsins sé góð bæði á einstaklings og fyrirtækjamarkaði. Fjöldi tjóna jókst ekki á milli ára en tjónakostnaður jókst um 5% á milli ára og nam hann um 8,7 milljörðum á árinu 2008. Má einnig rekja þessa hækkun til verðlagshækkana á síðara hluta ársins 2008. Fjárhagsleg endurskipulagning Í lok árs 2008 hófst vinna við fjárhagslega endurskipulagningu félagsins undir forystu skilanefndar Glitnis. Við yfirtöku Glitnis á dótturfélagi Milestone hf., Moderna Finance AB, í mars s.l., tók Glitnir yfir rekstur Sjóvár. Megintilgangur yfirtökunnar var að ná fullri stjórn á Sjóvá og forða félaginu frá yfirvofandi gjaldþroti. Mikilvægt var að tryggja áframhaldandi vátryggingarekstur félagsins með hagsmuni viðskiptavina og kröfuhafa fyrirtækisins að leiðarljósi svo og að koma í veg fyrir að háar fjárskuldbindingar lentu á ríkissjóði. Fjárhagslegri endurskipulagningu tryggingafélagsins lauk í s.l. viku með samkomulagi stjórnvalda, Íslandsbanka og skilanefndar Glitnis um stofnun nýs félags undir merkjum Sjóvár. Hið nýja félag yfirtekur vátryggingastarfsemi hins eldra félags og er þannig skilið á milli hefðbundins vátryggingareksturs og fasteignatengdrar fjárfestingastarfsemi sem unnið verður úr í núverandi félagi. Áframhaldandi verkefni skilanefndar Glitnis er að vinna með sem bestum hætti úr þeim eignum og skuldbindingum sem eftir eru í gamla félaginu, en sá rekstur er nýju tryggingarfélagi óviðkomandi. Ný yfirstjórn og nýtt félag Við yfirtöku Glitnis á rekstri Sjóvár í mars s.l. var skipt um stjórn í Sjóvá og hafa eftirtaldir aðilar setið í stjórn félagsins, f.h. skilanefndar Glitnis frá þeim tíma: Heimir Haraldsson - stjórnarformaður, löggiltur endurskoðandi, Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri, Bjarni Þórður Bjarnason, verkfræðingur, Þórólfur Jónsson, lögfræðingur og Ásmundur Ólason, verkefnastjóri. Mikilvægur liður í endurskipulagningunni var ráðning forstjóra yfir nýju félagi og var Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels, ráðinn forstjóri og hefur verið ákveðið að hann muni veita hinu nýja tryggingarfélagi forstöðu jafnframt því að ný stjórn verði skipuð yfir því. Með endurskipulagningunni uppfyllir nýja Sjóvá öll skilyrði Fjármálaeftirlitsins um vátryggingastarfsemi, félagið hefur nægar eignir á móti vátryggingaskuld og eiginfjárstaða þess er traust.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Sjá meira