Bjartsýnir á að tilboðinu verði vel tekið 20. febrúar 2009 15:20 Vilhjálmur Bjarnason fer fyrir hópnum.
Líkt og Vísir greindi frá fyrir stundu skilaði undirbúningshópur Almenningshlutafélags um Morgunblaðið tilboði í Árvakur hf. til Íslandsbanka en tilboðsfrestur rann út klukkan 14:00 í dag í tilkynningu frá hópnum segir að það sé mat hópsins að tilboðið sé fyllilega sanngjarnt fyrir hluthafa félagsins, kröfuhafa, starfsmenn og ekki síst lesendur Morgunblaðsins og mbl.is. Hópurinn er afar bjartsýnn á að tilboðinu verði vel tekið. „Verði Almenningshlutafélag um Morgunblaðið fyrir valinu í þessum lokahnykk útboðs Íslandsbanka er ljóst að markmið um raunverulega dreifða eignaraðild Morgunblaðsins og mbl.is mun nást. Þá er jafnframt tryggt að þessir rótgrónu fjölmiðlar verði gefnir út án nokkurra tengsla við stjórnmálaflokka, einstakar stjórnmálastefnur, viðskiptablokkir eða auðmenn. Enginn einn hluthafi mun fara með meira en sem nemur þriggja milljóna króna hlutafé," segir í tilkynningunni. Þá segir ennfremur að undirbúningshópurinn hafi unnið að tilboðsgerð um nokkurt skeið, ásamt VBS fjárfestingarbanka. Hópur fólks hafi farið í gegnum margvísleg gögn um rekstur félagsins og hafi sett saman viðskiptaáætlun til næstu ára. „Hópurinn vill þakka VBS fjárfestingarbanka kærlega fyrir gott samstarf um tilboðsgerðina. Einnig vill hópurinn koma á framfæri þakklæti til þeirra hundruða einstaklinga, alls staðar að úr þjóðfélaginu, sem lagt hefur lóð sín á vogarskálar framtaksins."
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira