Viðskipti innlent

Icelandair semur við Nýja Glitni um endurfjármögnun

Icelandair Group hefur, í samstarfi við viðskiptabanka sinn Nýja Glitni, lokið við endurfjármögnun á víxlum til skamms tíma eða þriggja mánaða.

Eins og fram kom í tilkynningum frá Icelandair Group í tengslum við ársfjórðungsuppgjör á árinu 2008 var samstæðan með víxla að fjárhæð 2,5 milljarðar króna á gjalddaga þann 23. janúar sl.. Þeir hafa nú verið endurfjármagnaðir.

Í tilkynningu um málið segir að unnið hafi verið undanfarið að endurskipulagningu á fjármagnsskipan samstæðunnar og á næstu þremur mánuðum er gert ráð fyrir að ljúka þeirri vinnu.

Markmið endurskipulagningarinnar er að aðlaga endurgreiðsluferli skulda að greiðslugetu samstæðunnar til lengri tíma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×