Viðskipti innlent

Heildarvelta kreditkorta minnkaði um 14% milli ára í apríl

Heildarvelta kreditkorta í aprílmánuði var 24,0 milljarðar .kr. samanborið við 27,9 milljarðar kr. á sama tíma í fyrra og er þetta 14% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í hagstölum Seðlabankans. Þar segir hinsvegar að heildarvelta kreditkorta jókst um 16% í apríl miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í apríl 28,8 milljarða kr. sem er svipuð velta og í mars. Samanborið við sama tíma í fyrra dróst heildardebetkortaveltan í apríl saman um 3,8 milljarða kr. milli ára eða um 13%.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×