Ferðaskrifstofa Íslands á barmi gjaldþrots 4. janúar 2009 15:05 Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands.
Flugi sem átti að fara frá Íslandi til Tenerife klukkan 07:00 í morgun hefur verið frestað til klukkan 18:00. Farþegarnir eru á vegum Ferðaskrifstofu Íslands sem er á barmi gjaldþrots. Félagið hefur tilkynnt Samgönguráðuneytinu um erfiðleika sína en forstjórinn vill ekki meina að félagið sé gjaldþrota. Um hundrað störf eru í húfi. Heimildir Vísis herma að fjárfestir sé í viðræðum um kaup á félaginu. „Nei við vonum það ekki," segir Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands aðspurður hvort félagið sé gjaldþrota. Ferðaskrifstofa Íslands er ein stærsta ferðaskrifstofa landsins en undir hana heyra Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir. „Við erum búnir að vera í nokkurn tíma í því að endurskipuleggja okkur og endurfjármagna ákveðna hluti, við erum vonandi búnir að loka því," segir Þorsteinn. Heimildir Vísis herma að seinkunin á umræddu flugi til Tenerife tengist fjárhagserfiðleikum félagsins. „Eigum við ekki bara að segja að það hafi verið af tæknilegum orsökum," segir Þorsteinn aðspurður um ástæður seinkunarinnar. Ferðaskrifstofan hefur látið Samgönguráðuneytið vita af erfiðleikum sínum og segir Þorsteinn það eðlilegt þar sem rekstur þeirra sé tryggður í gegnum ráðuneytið. „Við vorum bara í sambandi við þá og leyfðum þeim að fylgjast með hvað væri í gangi í okkar rekstri, það eru eðlileg vinnubrögð." Samkvæmt heimildum Vísis er allavega einn áhugasamur fjárfestir sem vill kaupa félagið. „Já þetta er verðmætt félag," segir Þorsteinn sem vildi annars lítið tjá sig um hugsanlega sölu á félaginu. Um 100 manns starfa hjá Ferðaskrifstofu Íslands.
Mest lesið Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent