Óvissa um afnám gjaldeyrishafta veikir gengi krónunnar 10. júlí 2009 12:48
Lítil trú virðist vera á krónunni og gríðarleg óvissa ríkir varðandi framtíð gjaldeyrishaftanna og hvenær þau verða afnumin. Óvissan veikir gengi krónunnar. Í stöðugleikasáttmála stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins segir að tímasett áætlun verði lögð fram fyrir 1. ágúst næstkomandi um afnám hafta. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að krónan hafi síðustu vikur verið að feta sig í átt að nýju jafnvægi í grennd við 230 stig þegar miðað er við gengisvísitöluna en evran hefur verið að sveiflast í kringum 178 krónur á sama tímabili og Bandríkjadollar í kringum 128 krónur. Af yfirlýsingum stjórnvalda, Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins má draga þá ályktun að afnám hafta geti hafist í fyrsta lagi síðar á þessu ári en ljóst er að það verður ekki gert fyrr en annarri endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verið lokið. Þá verður annar hluti láns AGS greiddur út auk fyrsta hluta lána Norðurlandanna en þessi lán verða notuð í að styrkja gjaldeyrisforðann sem er nauðsynlegt forsenda þess að hægt verði að aflétta höftunum. Seðlabankinn hefur þó sent frá sér nokkuð misvísandi skilaboð undanfarið um hve vænta megi að höftin verði langvinn. Þannig sagði framkvæmdastjóri upplýsingasviðs bankans nýlega í viðtali við Viðskiptablaðið að ekkert væri í spilunum um að gjaldeyrishöftin yrðu afnumin að fullu fyrir nóvemberlok á næsta ári. Óvissan um væntan líftíma haftanna er neikvæð fyrir gengi krónu að mati greiningarinnar. Í fyrsta lagi kyndir hún undir væntingar margra um veikingarhrinu á komandi mánuðum ef hafist verður handa við afléttingu haftanna fljótlega, sem svo aftur letur útflytjendur til sölu á gjaldeyri og hvetur aðra til kaupa á honum. Á hinn bóginn er sú skoðun, sem virðist allútbreidd, að höftin séu komin til að vera og því líkleg til að auka viðleitni manna við að fara í kring um þau. Rannsóknir hafa sýnt að gjaldeyrishöft ná sjaldnast tilgangi sínum til lengri tíma litið og raunar má færa rök fyrir því að í hagkerfi sem er eins lítið, opið og þróað og hið íslenska séu enn minni líkur en ella á að höft haldi nema tímabundið.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira