Skattakóngur Íslands: Vill að peningarnir fari í heilbrigðiskerfið Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2009 12:56 Þorsteinn Már Baldvinsson segir að skattgreiðslur hans séu ekki vegna innleysts hagnaðar.
Tæplega 70% þeirra skattagreiðslna sem Þorsteinn Már Baldvinsson greiddi á síðasta ári eru tilkomnar vegna flutnings á hlutabréfum í Samherja hf. sem voru í hans persónulegu eign yfir í sérstakt félag í eigu hans og Helgu S Guðmundsdóttur fyrrverandi eiginkonu hans. Þetta segir Þorsteinn í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Þorsteinn greiddi 170 milljónir í opinber gjöld á síðasta ári, mest allra Íslendinga. Hann segir að ekki sé um innleystan hagnað að ræða fyrir hann og engir fjármunir hafi færst til sín í tengslum við flutninginn. Einu peningagreiðslurnar tengdar þessu máli séu því greiðsla á fjármagnstekjuskatti í ríkissjóð. „Með því að flytja eignarhaldið á bréfunum yfir í sérstakt félag bar mér að greiða skatt af ímynduðum söluhagnaði sem myndast vegna áætlaðrar verðmætaaukningar á hlutabréfum í Samherja hf. yfir langt árabil. Umrædd bréf hafa verið á mínu nafni síðastliðinn 27 ár og hef ég í hyggju að eiga þau áfram í gegnum umrætt félag," segir Þorsteinn Már. . Að lokum segist Þorsteinn aldrei hafa verið skattfælinn maður og hann voni að ríkissjóður fari vel með þessa fjármuni. „Fengi ég einhverju ráðið vildi ég helst sjá þeim varið í helbrigðiskerfið," segir Þorsteinn að lokum í yfirlýsingunni.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira