Voru að bera saman epli og appelsínur 10. mars 2009 12:08 Gunnar Sigurðsson
Forsvarsmenn Baugs segja það rangt hjá fulltrúum Glitnis og Íslandsbanka að halda því fram að stjórnendur Baugs hafi meðvitað blekkt kröfuhafa Baugs Group og lagt fram villandi upplýsingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Gunnari Sigurðssyni forstjóra og Stefáni Hilmari Hilmarssyni fjármálastjóra Baugs. Þar segir ennfremur að með því að bera saman kynningu Baugs á fundi með kröfuhöfum annarsvegar og Project Sunrise hins vegar hafi menn verið að bera saman epli og appelsínur. „Þetta vita stjórnendur og starfsmenn Glitnis og Íslandsbanka en er óvíst hvort lögmenn þeirra hafi áttað sig á því." Í yfirlýsingunni segir að Project Sunrise hafi verið samstarfsverkefni Baugs Group og Landsbankans sem hófst strax eftir hrun íslensku bankanna í október, sem gekk út á að stofna sjóð með eignum Baugs annars vegar og Landsbankans og Glitnis hins vegar í verslunarrekstri í Bretlandi. „Má ætla að verðmæti eigna Baugs Group hafi átt að nema um 28% af heildareignum þessa nýja sjóðs. Þær eignir sem fyrirhugað var að Landsbankinn legði til sjóðsins voru um 57% af heildareignum hans. Hlutfall Glitnis í sjóðnum átti að nema um 15%. Samtals var áætlað verðmæti eigna í sjóðnum um 985 milljónir sterlingspunda. Fyrirhugað var að stærsta eign sjóðsins átti að vera 77% hlutur í verslunarkeðjunni Iceland Foods, sem Baugur á nú 13,7% hlut í. Áttu arðgreiðslur úr sjóðnum að standa undir endurgreiðslu lána Baugs til allra kröfuhafa á fjögurra til fimm ára tímabili." Þá segir að í Héraðsdómi í gær hafi lögmenn Glitnis verið að bera saman fjárhagsstöðu þessa sjóðs, samkvæmt Project Sunrise, annars vegar, við fjárhagsstöðu Baugs Group hins vegar. „Slíkt er ekki aðeins villandi eða rangt, heldur einnig meiðandi í garð stjórnenda Baugs. Vandséð er hvaða hvatir liggi að baki slíkum málflutningi fulltrúa bankanna." Þá segja þeir að þeir eins og aðrir stjórnendur og starfsmenn Baugs hafi lagt dag við nótt við að bjarga því sem bjargað verður í félaginu eftir hrun íslensks efnahagslífs. „Komið hefur fram að búið er að tryggja fjármögnun á rekstri félagsins í greiðslustöðvuninni þannig að eignir þess rýrna ekki á meðan henni stendur. Þá kom fram í Héraðsdómi í gær að verið er að freista þess að bjarga verðmætum sem nema milljörðum króna sem hætt er við að fari í súginn ef félagið verður keyrt í gjaldþrot á þessum tímapunkti. Það er varla hagur íslensks samfélags að enn frekari fjármunum verði kastað á glæ." Þá skorast þeir ekki undan því að ræða opinskátt fjárhagsstöðu og málefni Baugs Group. „Við frábiðjum okkur hins vegar að upplýsingar séu settar fram með þeim hætti sem fulltrúar Glitnis og Íslandsbanka hafa gert í þessu máli, sem getur í raun flokkast sem rógburður. Slíkt þjónar engum uppbyggilegum tilgangi og getur frekar leitt til enn frekari glötunar á verðmætum en þegar er orðið."
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira