Skilanefndirnar munu kosta 1,8 milljarð 24. janúar 2009 18:55
Kostnaður við skilanefndir bankanna verður orðinn 1,8 milljarðar króna ef þær starfa í óbreyttri mynd næstu þrjú árin eins og gert er ráð fyrir að þær muni gera. Greiðslur til skilanefnda viðskiptabankanna þriggja Glitnis, Kaupþings og Landsbankans námu 150 milljónum króna frá október til áramóta. Fimmtán manns sitja í skilanefndunum sem þýðir að hver maður hafi kostað 10 milljónir króna á þremur mánuðum eða 3,3 milljónir á mánuði. Fjármálaeftirlitið gerði verktakasamninga við þau fyrirtæki sem skilanefndarmennirnir 15 starfa fyrir og er aðallega um að ræða endurskoðunarfyrirtæki og lögmannsstofur. Gera má ráð fyrir að þær ljúki störfum fyrr en eftir 2-3 ár. Þegar fréttastofa bað um sundurliðum á reikningi vegna skilanefnda hjá viðskiptaráðuneytinu, sagði Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar að viðskiptaráðherra væri ekki með málið á sinni könnu. Þó svo hann væri yfirmaður bankamála, væri málið hjá Fjármálaeftirlitinu. Hann sagði ekki búið að ákveða hvernig málum yrði háttað í framtíðinni, hvort skilanefndir myndu starfa í sömu mynd eða hver áætlaður kostnaður yrði í framtíðinni. Upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins vildi heldur ekki gefa fréttastofu upplýsingar um málið, sagði það trúnaðarmál. Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna skilanefnda verði eitthvað minni í framtíðinni en hann er nú en fari svo að skilanefndirnar ljúki störfum eftir þrjú ár eins og gert er ráð fyrir og kostnaður haldist sá sami, verður heildartalan komin í 1,8 milljarða króna að þremur árum liðnum.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira