Ekkert eins og áður var Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. janúar 2009 06:00 Sparisjóðurinn í Keflavík var m.a. með útibú á Ísafirði. „
Það verður ekkert eins og var áður,“ segir Jóhann Antonsson, stjórnarformaður Sparisjóðs Svarfdæla á Dalvík og vísar þar til breytts rekstrarumhverfis fjármálafyrirtækja. Smærri sparisjóðir eiga sumir hverjir í óformlegum þreifingum um samruna eða samstarf, en Jóhann telur þó lítinn fót fyrir fréttum af stofnun nýrrar norðlenskrar peningastofnunar. „Sparisjóðsmenn um allt land velta hins vegar ýmsu fyrir sér í hagræðingarskyni þótt viðræður séu óformlegar,“ segir hann. „Allir leita hins vegar að hagkvæmustu leiðum. Það eina sem maður getur verið viss um er að ekkert verður eins og var áður. Ýmislegt þarf að breytast.“ Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, telur sömuleiðis að við sparisjóðum landsins blasi gjörbreyttar aðstæður sem bregðast verði við. „Ég horfi fram á að á árinu verði samþjöppun meðal sparisjóða,“ segir hann. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, kveður „úr lausu lofti gripnar“ þreifingarnar um norðlensku peningastofnunina sem vísað var til í kvöldfréttum Útvarps í vikunni. Banki hans átti þar að verða stærsti eigandi. „Menn eru sjálfsagt að hittast hér og hvar í kaffi og kleinum, en við höfum ekki komið nálægt neinum viðræðum á þessum nótum.“ Við sameininguna voru orðaðir Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Ólafsfjarðar, Sparisjóður Siglufjarðar, Sparisjóður Skagafjarðar og Sparisjóður Höfðhverfinga á Grenivík, með mögulegri aðkomu KEA og Kaupfélags Skagfirðinga. Saga Capital og VBS fjárfestingarbanki áttu í haust í viðræðum um mögulega sameiningu en þeim var slegið á frest í októberbyrjun vegna mikillar óvissu á fjármálamörkuðum. Þá hafði í fyrravor verið samið um aðkomu KEA að Sparisjóði Höfðhverfinga, en fallið var frá þeim ráðahag eftir að hann hafði um allnokkurt skeið verið til umfjöllunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þá hafði KEA einnig átt í viðræðum við Sparisjóð Svarfdæla um aðkomu að sjóðnum, en þeim hefur, samkvæmt heimildum blaðsins verið hætt, í minnsta kosti að sinni. Samrunaviðræður Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs sparisjóðs og SPRON munu vera á áætlun og ennþá að því stefnt að boða stofnfjáreigendur og hluthafa til fundar í febrúar þar sem fjallað verði um samruna sjóðanna. Formlegar sameiningarviðræður hófust í desemberbyrjun, en verði af sameiningunni miðar hún nýliðin áramót.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira