Deutche Bank er aðeins milligönguaðili með kvótaveðin 7. janúar 2009 15:28
Skilanefnd Glitnis segir að Deutche Bank sé aðeins milligönguaðili hvað varði kvótaveð þau sem seld voru úr landi og eigi enga kröfu á viðkomandi útgerðir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá skilanefndinni. Yfirlýsingin hljóðar svo: „Í ljósi umfjöllunar fjölmiðla um að veð vegna lána tiltekinna íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hafi komist í eigu erlendra banka vill skilanefnd gamla Glitnis taka fram að þau lánasöfn sem vísað er til eru á forræði gamla Glitnis sem sér um umsýslu og innheimtu þeirra. Vegna breyttra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum á síðustu misserum hafa fjármálastofnanir heimsins í auknum mæli tryggt sér aðgengi að lausu fé með því að setja einstök lánasöfn að veði hjá seðlabönkum, meðal annars Seðlabanka Evrópu. Hjá gamla Glitni voru þrjú slík lánasöfn sett að veði gegn lánveitingu í Seðlabanka Evrópu fyrir milligöngu Seðlabanka Lúxemborgar. Þar á meðal eru lán nokkurra íslenska fyrirtækja, m.a. sjávarútvegsfyrirtækja. Var það gert að höfðu samráði og að fengnu samþykki viðkomandi fyrirtækja. Í kjölfar hruns á fjármálamarkaði lokaðist gjaldeyrismarkaður á Íslandi. Til að fyrirbyggja vanskil vegna þessa ástands var þeim tilmælum beint til viðkomandi fyrirtækja að þau greiddu beint til móttökuaðila seðlabanka Evrópu, sem er Deutche Bank. Nú hefur greiðslufyrirmælum verið komið í fyrra horf og er innheimta og forræði þessara lánasafna eftir sem áður á höndum gamla Glitnis. Áréttað skal að Deutche Bank er eingöngu milligönguaðili um greiðslu og á enga kröfu á viðkomandi fyrirtæki. Við fall íslensku bankanna komust umrædd lánasöfn í uppnám þar sem Seðlabanki Evrópu öðlaðist rétt til að ganga að veðum sínum og leysa lánin til sín. Skilnefnd gamla Glitnis hefur á síðustu vikum unnið að samkomulegi við seðlabankann sem er nú á lokastigi. Í því felst m.a. að gamli Glitnir hefur svigrúm í 3-5 ár til þess að vinna úr þessari stöðu. Á næstu árum er því mikilvægt að þau félög sem um ræðir lendi ekki í vanskilum og tryggi sér endurfjármögnun um leið og aðstæður á fjármagnsmörkuðum leyfa. Til viðbótar hefur skilanefnd Glitnis samið um að andvirði fasteignalánasafns sem er í eigu dótturfélags bankans í Lúxemborg renni til niðurgreiðslu lána hjá Seðlabanka Evrópu. Sú ráðstöfun mun flýta fyrir því að hægt verði að leysa þessi mál. „
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira