Ásbjörn RE seldi fyrir 42 milljónir kr. í Bremerhaven 7. janúar 2009 14:07
Í morgun var lokið við að selja afla úr ísfisktogaranum Ásbirni RE á fiskmarkaðnum í Bremerhaven í Þýskalandi. Alls voru seld rúmlega 138 tonn af fiski úr skipinu á þremur dögum og fyrir það magn fengust tæplega 250 þúsund evrur eða tæpar 42 milljónir króna miðað við miðgengi eins og það er skráð hjá Seðlabanka Íslands. Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóra togara HB Granda, segir á heimasíðu HB Granda að afla skipsins var landað í Bremerhaven sl. sunnudag og sölunni svo dreift á fyrstu þrjá söludaga vikunnar. Uppistaða aflans, eða um 120 tonn, var karfi og var það Ísey sem sá um sölu aflans ytra. ,,Við erum þokkalega ánægðir með árangurinn og þá ekki síst í ljósi þess að það var töluvert mikið framboð af gámafiski í Bremerhaven nú í byrjun vikunnar. Það var talað um að rúmlega 300 tonn af karfa væru væntanleg í gámum en vera má að hluti þess magns hafi verið sendur til Frakklands," segir Birkir. Ásbjörn RE lét úr höfn í Bremerhaven sl. mánudagskvöld og ef allt gengur að óskum er skipið væntanlegt til Reykjavíkur í hádeginu nk. laugardag.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira