Eyðsla ferðamanna hefur tvöfaldast í ár 5. ágúst 2009 03:00 helgi hrannarr jónsson
Ferðamenn eyddu um 90 prósentum meira að meðal-tali á Íslandi frá janúar til júlí, en á sama tímabili í fyrra. Mest er aukningin hjá Dönum, um 150 prósent, og skipa þeir sér nú í efsta sæti listans sem Bandaríkjamenn hafa lengst af verið í. „Mynstrið á ferðamönnum virðist vera að breytast. Áður var þetta mikið af fólki sem kom til að skoða náttúruna en nú virðast þeir vera tilbúnir að kaupa meira," segir Helgi Hrannarr Jónsson, framkvæmdastjóri Global Refund, sem sér um umsýslu fyrir Tax Free á Íslandi. „Íslenskir verslunareigendur eiga hrós skilið fyrir að bjóða upp á öflugt vöruúrval þrátt fyrir stöðuna," segir Helgi. Þótt aukning sé um 90 prósent má gera ráð fyrir að 30 til 40 prósent stafi af verðhækkunum, að sögn Helga. Sagt var frá því í Fréttablaðinu að aukning í ferðum frá Frakklandi er um 55 prósent hjá Icelandair. Helgi hefur svipaða sögu að segja. „Ef horft er á Frakka, Þjóðverja, Ítali og Hollendinga er aukningin í eyðslu í kringum 110 til 125 prósent". Lengst af hafa Bandaríkjamenn verið í fyrsta sæti yfir þá ferðamenn sem eyða mestu á Íslandi. Í fyrra komust Norðmenn í efsta sætið, en nú hafa danskir ferðamenn skotist upp á toppinn, að sögn Helga. Norðmenn eru næstflestir, með aukningu um rúmlega 100 prósent frá því í fyrra og Bandaríkjamenn eru í þriðja sæti með svipaða aukningu. Aukningin hjá þjóðum á borð við Kanada, Kína og Rússlandi er minni, en Kandamenn hafa eytt 67 prósent meira í ár en í fyrra. Meðaltals endurgreiðsla til ferðamanna í gegnum Tax Free hefur aukist um 20 prósent og er meðaltalsávísun nú 14.500 krónur, að sögn Helga. Þjóð sem sker sig úr eru til dæmis Rússar, þar sem meðaltalið er vel yfir 16 þúsund krónum. Bretar eru hins vegar með tæplega 12 þúsund krónur. Þrátt fyrir þessa aukningu í sölutölum frá janúar til júlí fækkaði ferðamönnum um þrjú prósent á tímabilinu janúar til júní. „Ég er viss um að við munum ná sama heildarfjölda á árinu og í fyrra því það kemur gríðarlegur fjöldi í júlí, ágúst og september," segir Helgi. vidir@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira