Væntingar um minni verðbólgu setja svip á skuldabréf 2. febrúar 2009 12:30
Svo virðist sem verðbólguvæntingar hafi breyst verulega á skuldabréfamarkaði í kjölfar birtingar Seðlabankans á Peningamálum á síðastliðinn fimmtudag. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að í ritinu er að finna nýja verðbólguspá bankans sem er mun bjartsýnni hvað verðbólguhorfur varðar en fyrri spá sem gefin var út í nóvember. Raunar er hin nýja spá býsna lík verðbólguspá greinignarinnar sem birt var um miðjan janúar. Gera báðar spárnar ráð fyrir að verðbólga sé nú í hámarki og að hún verði komin niður undir 2,5% markmið Seðlabanka að ári liðnu. Í kjölfarið gera spárnar ráð fyrir lítilli verðbólgu út áratuginn. Krafan á stysta flokki verðtryggðra íbúðabréfa, HFF14, hækkaði snarpt seinni hluta síðustu viku, en sá skuldabréfaflokkur er viðkvæmur fyrir breytingum á verðbólguvæntingum. Krafa HFF14 er nú 4,56% en var 3,9% fyrir viku síðan. Mun minni breytingar hafa orðið á kröfu annarra íbúðabréfa, sér í lagi þeirra lengstu. Á hinn bóginn hefur ávöxtunarkrafa flestra óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað talsvert frá vaxtaákvörðun Seðlabanka á fimmtudag, því enda þótt vöxtum væri haldið óbreyttum var gefið sterklega í skyn að vaxtalækkun væri á næsta leyti og að vextir myndu lækka verulega á yfirstandandi ári.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira