Viðskipti innlent

Toyota eykur starfshlutfall á verkstæðum í 100%

Vegna góðrar verkefnastöðu á verkstæðum Toyota í Kópavogi hefur verið ákveðið að í febrúar verði starfshlutfall starfsmanna þeirra 100% í stað 90%.

Í tilkynningu segir að starfshlutfall allra starfsmanna Toyota í Kópavogi var um áramótin lækkað í 90%, en vegna meiri umsvifa á verkstæðum en búist var við hefur starfshlutfall þar verið fært til fyrra horfs.

„Það dró nokkuð úr verkstæðisvinnu í desember eins og yfirleitt gerist í jólamánuðinum, en það sem af er nýju ári hefur eftirspurnin verið töluvert meiri en við gerðum ráð fyrir og það hefur komið okkur skemmtilega á óvart," segir Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota í Kópavogi.

„Við teljum að mikil eftirspurn eftir þjónustu á verkstæðum skýrist af því að endurnýjun á bílum er hægari nú en á undanförnum misserum, en greinilegt er að bíleigendur vilja koma með bílana í reglubundnar skoðanir og gera strax við það sem bilar til að tryggja sem besta endingu bílanna" segir Haraldur enn fremur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×