Viðskipti innlent

Saltfélagið og Habitat sameinast

Að öllum líkindum verða húsgagnaverslanirnar Habitat og Salt­félagið sameinaðar.
Að öllum líkindum verða húsgagnaverslanirnar Habitat og Salt­félagið sameinaðar.
Húsgagnaverslanirnar Saltfélagið og Habitat verða að öllum líkindum sameinaðar. Verslanirnar eru báðar í eigu Pennans.

Öllu starfsfólki beggja félaga hefur verið sagt upp á undanförnum þremur mánuðum. Starfsfólk er enn að vinna sinn uppsagnarfrest. Verður hluti þess endurráðinn þegar ákvörðun verður tekin um framtíð fyrirtækjanna.

Ýmsar útfærslur munu vera til skoðunar á sameiningu Saltfélagsins og Habitat, samkvæmt heimildum Fréttablaðins. Meðal annars að bæði félög verði í Holtagörðum, þar sem Habitat er til húsa, eða að flytja Habitat í húsnæði Saltfélagsins á Grandagarði. Meðal annars eiga sér nú stað samningaviðræður við leigusala. Málið á að skýrast á næstu vikum, eftir að útsölum lýkur. Velta í húsgagnaverslun hefur minnkað verulega á undanförnum mánuðum. Í desember minnkaði velta í húsgagnaverslun um 51,3 prósent á föstu verðlagi, samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Auk Saltfélagsins og Habitat á Penninn meðal annars bókabúðir Máls og menningar og Eymundsson, hlut í Te og kaffi og Stubbasmiðjuna.

Þá á Penninn húsgagnafyrirtækið Coppa í Lettlandi, rekstrarvörukeðjuna Office Day, í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen, og kaffihúsakeðjuna Insomnia á Írlandi. - hhs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×