Enginn tímarammi um afnám haftanna 6. ágúst 2009 05:00 Á að vera leiðinlegt Eftir þá gagnrýni að ekkert nýtt hefði komið fram á blaðamannafundinum – hann væri í raun fundur um ekki neitt – sagði Svein Harald Øygard seðlabankastjóri að blaðamannafundir seðlabanka ættu með réttu að vera leiðinlegir og lausir við óvænt tíðindi. Með honum á myndinni eru Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
Svein Harald Øygard seðlabankastjóri segist vonast til þess að búið verði að aflétta gjaldeyrishöftum af landinu að fullu eftir tvö til þrjú ár. Hann segist sjálfur ætla að gera hvað hann getur til að aðstæður skapist til þess. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum í gær þar sem áætlun um afnám haftanna var kynnt. Áætlunin er afar lausleg og hvergi eru nefndar neinar sérstakar tímasetningar, ef frá er talin dagsetningin 1. nóvember, en fyrirhugað er að fyrsta hluta áætlunarinnar verði hrundið í framkvæmd í síðasta lagi þá. Fyrsti hlutinn kveður á um afnám hafta á innstreymi erlends fjármagns, það er erlendar fjárfestingar hérlendis. Þá munu fjárfestar jafnframt geta farið með hagnað sinn úr landi. Ýmsar forsendur þurfa þó að vera fyrir hendi þegar þar að kemur, til dæmis þarf að vera búið að endurreisa bankana, greiða úr Icesave-deilunni, safna nægum gjaldeyrisvaraforða og koma á gengisstöðugleika. Að því loknu tekur annar áfangi áætlunarinnar við, en í honum felst að afnema útstreymi erlends gjaldeyris í skrefum, fyrst af langtímaskuldabréfum og síðar af miðlungs- og skammtímabréfum. Í síðarnefnda flokkinn falla fjáreignir sem taldar eru miklar líkur á að verði fluttar úr landi, en það gæti grafið undan skilvirkni kerfisins, að því er segir í samantekt Seðlabankans. Þá verður notkun íslensku krónunnar í alþjóðaviðskiptum háð takmörkunum þar til afnám haftanna kemst á lokastig. Øygard áréttaði að stíga þyrfti varlega til jarðar við afnám haftanna og að afar mikilvægt væri að gefa ekki of afdráttarlausar yfirlýsingar. Til þess væri óvissan of mikil auk þess sem varast þyrfti að stofna stöðugleika krónunnar í hættu. Á meðan þetta ferli stendur yfir verður eftirlit með því að höftin séu virt aukið, og hefur Seðlabankinn þegar látið Gjaldeyriseftirlitinu í té aukinn mannafla til þess. Aðspurður vildi Øygard ekki segja til um hvað hið aukna eftirlit kæmi til með að kosta. Þá mun sérstakt eftirlit verða haft með tilteknum geirum, og jafnvel tilteknum einstaklingum og fyrirtækjum, sem sérstök hætta þykir á að fari á svig við reglurnar. Øygard vildi aðspurður ekki nefna atvinnugreinar eða sérstök félög í þessu samhengi. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira