Innlent

Björgunarsveit sótti slasaðan hestamann

Á sjötta tímanum í dag var Björgunarsveitin Dalvík kölluð út vegna hestamanns sem féll af baki og slasaðist þegar hann var í hópferð hestamanna í botni Svarfaðardals samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg.

 

Hestamaðurinn fótbrotnaði og þurfti 10 björgunarsveitamenn til að bera hann um 2 kílómetra leið í sjúkrabíl. Maðurinn var fluttur á Heilsugæsluna á Dalvík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×