Fékk ekki barnapössun og kemst ekki á átakafund 6. ágúst 2009 20:33 Birgitta Jónsdóttir fékk ekki barnapössun. „
Kæru félagar, Vegna þess hve fyrirfarinn var stuttur sé ég mér ekki fært á að mæta í kvöld en ég hef ekki aðgang að pössun í kvöld og vil helst ekki taka son minn með á átakafund." Þetta skrifaði Birgitta Jónsdóttir, þingkona Borgarahreyfingarinnar í athugasemd við fundarboð varðandi félagsfund Borgarahreyfingarinnar sem verður í kvöld. Fundurinn hófst klukkan átta. Birgitta skrifar áfram: „Ég hef sagt það opinberlega og segi það líka við ykkur að mér finnst best að ræða við fólk án milliliða og mér finnst ótækt að fjalla um málefni Þráins án þess að hann sé á staðnum til að svara fyrir sig. Við lögðum til vegna þess að öll okkar athygli er á Icesave (Þór er til að mynda að fara á fund þar af lútandi í kvöld með sinni nefnd) að fundi yrði frestað um viku - þá væri búið að taka Icesave út úr nefnd og við hefðum betri tök á að sinna þessu málefni." Fundurinn er tilkominn vegna atkvæðagreiðslu um ESB á þingi þann 16 júlí síðastliðinn. Þá kusu Birgitta auk Þórs Saari og Margrétar Tryggvadóttur, gegn ESB aðildarumsókninni. Þá höfðu þau gert heiðurssamkomulag við Samfylkinguna um að greiða atkvæði með tillögunni. Þráinn Bertelsson kaus með málinu og gagnrýndi samflokksmenn sína harkalega í kjölfarið. Sú gagnrýni náði hámarki í Fréttablaðinu í dag. En Birgitta þykir málið ekki ýkja mikilvægt miðað við þau risamál sem eru í gangi í þjóðfélaginu og skrifar að lokum: „Mér finnst ástæðulaust að vera að gera úlfalda úr mýflugu - en það er einmitt það sem þetta vandamál er miðað við Icesave. Ég hlakka svo til að hitta ykkur að viku liðinni. Með björtum kveðjum, Birgitta"
Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Fleiri fréttir „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Sjá meira