Tíu þúsund gætu flúið land 6. ágúst 2009 06:00
Allt að tíu þúsund manns gætu flutt úr landi á næstu árum umfram þá sem flytjast til landsins vegna kreppunnar að mati Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þetta byggir hann á samanburði við fólksflutninga vegna efnahagsþrenginga á 10. áratugnum og spám um atvinnuleysi. Aukin skuldabyrði gæti orðið til þess að enn fleiri flyttu úr landi. Stefán segir að þótt þetta væri vissulega blóðtaka fyrir íslenskt samfélag væri þetta ekki reiðarslag. „Íslenskt samfélag myndi vel þola að missa um þrjú prósent af fólksfjöldanum. Ætli það megi ekki miða sársaukamörkin við fimm prósent af íbúafjöldanum [um 16 þúsund manns], þá færum við að finna nokkuð fyrir fólksflutningunum." Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Icesave-skuldbindingarnar kemur fram að skuldabyrði landsmanna myndi þyngjast ef fólk flytti úr landi í stórum stíl. Trúlegt sé að margir Íslendingar flytji úr landi á næstu árum en erfitt sé að meta fjöldann fyrirfram. Guðmundur Jónsson, prófessor í hagsögu, tekur undir viðvaranir Hagfræðistofnunar um fólksflótta og segir rétt að stjórnvöld hafi þær í huga. „Fólksflutningar þýða alla jafna að það dregur úr landsframleiðslu, það er yfirleitt beint samhengi þar á milli. Það gæti þó líka orðið framleiðsluaukning á hvern mann, til dæmis ef það fækkar í ofmönnuðum atvinnuvegum. Þess vegna er rétti samanburðurinn að líta á landsframleiðslu miðað við höfðatölu ef ætlunin er að kanna raunverulegar breytingar á lífskjörum." Guðmundur segir tvö tímabil á lýðveldistímanum hafa verið erfið á Íslandi vegna fólksflutninga. Sex til sjö þúsund manns hafi flutt úr landi 1968 til 1970 eftir að síldveiðar hrundu og á fimmta þúsund manns hafi flutt á samdráttartímabili á 10. áratugarins. Reynsla þessara ára sýni að þótt að efnahagsástand batni taki það tíma að draga úr atvinnuleysi og stemma stigu við fólksflutningum. Að þessu verði stjórnvöld að huga á næstu misserum.- bs /
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Bauð Pútín að vera „músin“ hans Erlent Fleiri fréttir Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Sjá meira