Bresk stjórnvöld lofuðu ekki flýtimeðferð vegna Icesave 2. mars 2009 19:46 Björgólfur Thor Björgúlfsson.
Ekkert samkomulag var gert um flýtimeðferð til þess að koma Icesave reikningunum í breska lögsögu líkt og Björgólfur Thor Björgólfsson hélt fram í viðtali við Kompás skömmu eftir hrun bankanna. Þetta kemur fram í svari breska fjármálaráðuneytisins og breska fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Friðriks Þórs Guðmundssonar, sjálfstætt starfandi blaðamanns, sem hann sendi fyrrgreindum stofnunum í Bretlandi. Svörin voru birt í Kastljósi í kvöld Björgólfur Thor Björgólfsson kaupsýslumaður hélt því fram í Kompási sem sýndur var þann 27. október síðastliðinn að daginn áður en neyðarlög voru sett á bankana hafi bresk yfirvöld boðist til að taka alla Icesave reikninga undir sína ábyrgð á fimm dögum, gegn því að Seðlabankinn lánaði Landsbankanum 200 milljónir punda í tryggingu. Í viðtalinu fullyrti Björgólfur að ef þessu góða boði hefði verið tekið hefðu Icesave reikningarnir getað farið undir breska lögsögu og íslensk stjórnvöld geta forðast harðvítuga milliríkjadeilu við Breta um ábyrgð á reikningunum. Seðlabanki Íslands hafnaði hins vegar að lána Landsbankanum 200 milljóna punda tryggingu Daginn eftir að það gerðist og bankinn var tekinn með neyðarlögum hringdi Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta í Árna Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra. Björgólfur Thor sagðist í samtali við Kompás telja að í samtalinu hafi Darling, furðu lostinn, vísað í að Landsbankinn hafi ekki fengið fyrirgreiðslu deginum áður. Smelltu hér til að horfa á það sem Björgólfur sagði í Kompási
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira