Ekki hægt að alhæfa um stöðu stofnfjáreigenda Byrs 18. mars 2009 16:01 Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs. „
Varðandi ummæli sem höfð eru eftir Guðjóni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sparisjóða, um að stofnfjáreigendur Byrs séu of skuldsettir til að styrkja bankann, er rétt að geta þess að hjá Byr eru um 1.500 stofnfjáreigendur," segir Ragnar Z. Guðjónsson, sparistjóðsstjóri Byrs. Hann bendir á að um fjölbreyttan hóp fyrirtækja og einstaklinga sé að ræða, sem hafa ýmist átt stofnfé hjá Byr um jafnvel áratuga skeið eða komið nýir inn í hópinn á undanförnum misserum. „Ekkert verður alhæft um stöðu hópsins almennt enda liggja þær upplýsingar hvergi fyrir," segir hann. Að sögn Ragnars stóð Byr frammi fyrir því á árinu 2007 að þurfa að auka stofnfé sitt verulega, meðal annars vegna sameininga við aðra sparisjóði og harðnandi samkeppni við viðskiptabankana. Stofnfjáreigendur Byrs lögðu því fram 26,9 milljarða króna í auknu stofnfé það árið. „Sparisjóður getur lögum samkvæmt eingöngu greitt arð af stofnfé sínu. Þar sem arðsemi eigin fjár á árinu 2007 náði 44% auk þess sem árið var mesta hagnaðarár Byrs, var um óvenjuháa arðgreiðslu að ræða eða 13,5 milljarð króna," segir Ragnar og bætir við að þó að ákvörðun um umrædda aðrgreiðslu hafi verið tekin með hliðsjón af sterkri stöðu sparisjóðsins, „verður hún að teljast óheppileg með tilliti til þeirrar atburðarrásar sem síðar varð og leiddi til hruns bankakerfisins." Að lokum segir Ragnar að tap sparisjóðsins samkvæmt ársuppgjöri 2008 megi að mestu rekja til „varúðarniðurfærslna" á eignum sjóðsins. „Arðgreiðslan kemur hvergi þar nærri og hefur engin áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins 2008 frekar en aðrar arðgreiðslur sparisjóða," segir Ragnar að lokmum.
Tengdar fréttir Stofnfjáreigendur Byrs geta ekki styrkt bankann Stofnfjáreigendur Byrs eru of skuldsettir til að styrkja bankann að mati Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka sparisjóðanna. Bankinn tapaði 29 milljörðum króna í fyrra en inni í því tapi er arðgreiðsla til stofnfjáreigenda upp á 13 milljarða. Bankinn hefur nú óskað eftir aðstoð frá ríkinu upp á rúma 10 milljarða. 18. mars 2009 12:07 Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Stofnfjáreigendur Byrs geta ekki styrkt bankann Stofnfjáreigendur Byrs eru of skuldsettir til að styrkja bankann að mati Guðjóns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka sparisjóðanna. Bankinn tapaði 29 milljörðum króna í fyrra en inni í því tapi er arðgreiðsla til stofnfjáreigenda upp á 13 milljarða. Bankinn hefur nú óskað eftir aðstoð frá ríkinu upp á rúma 10 milljarða. 18. mars 2009 12:07