Samkeppniseftirlitið beitir Teymi dagsektum 4. febrúar 2009 12:30
Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun í dag lagt þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl. Í umfjöllun um málið á vefsíðu eftirlitsins segir að með bráðabirgðaákvörðuninni mælti Samkeppniseftirlitið fyrir um að fulltrúar Teymis í stjórn Tals skyldu víkja úr stjórninni eigi síðar en 30. janúar sl. Í stað þeirra skyldu síðan skipaðir tveir óháðir einstaklingar, tilnefndir af Samkeppniseftirlitinu. Samkeppniseftirlitið taldi sennilegt í bráðabirgðaákvörðun sinni að fulltrúar Teymis hefðu beitt sér gegn samkeppnislegu sjálfstæði Tals og því væri nauðsynlegt að gera breytingar á stjórn Tals. Ella væri hætta á því að Teymi og Vodafone gætu veikt Tal varanlega sem keppinaut á markaði. Með háttsemi sinni hefðu Teymi, Vodafone og Tal brotið gegn ákvörðun eftirlitsins um samruna Teymis og Tals frá síðasta ári og ákvæðum samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur að Teymi hafi virt framangreind fyrirmæli að vettugi. Það liggur fyrir að fulltrúar Teymis í stjórn Tals eru enn stjórnarmenn í félaginu og af því leiðir einnig að þeir einstaklingar sem tilnefndir hafa verið af Samkeppniseftirlitinu hafa ekki verið skipaðir í stjórn Tals. Ljóst er að stjórnendur Teymis hafa á valdi sínu að hlutast til um efndir á fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins en félagið hefur ekki farið að þeim.
Mest lesið „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Neytendur Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Edda Rós til Hagstofunnar Viðskipti innlent Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Sjá meira