Viðskipti innlent

Straumur setur nýtt tapmet - 105 milljarða króna

Straumur fjárfestingabanki tapaði 105 millljörðum króna á síðasta ári, eftir að hafa skilað hagnaði á fyrri árshelmingi og er þetta mesta tap hjá íslensku fyrirtæki á einu ári til þessa.

Heildareignir félagsins rýrnuðu um 52 prósent á árinu vegna mikilla afskrifta og rýrnunar útlána. Þrátt fyrir þessi áföll var eiginfjárhlutfall bankans um síðustu áramót tvöfalt meira en lögboðið lágmark og segir William Fall, forstjóri Straums, að markmiðið sé að þróa fjárfestingabanka á alþjóðavísu. Nýverið var greint frá því að eigendur Straums væru að íhuga að flytja bankann til Bretlands eða Svíþjóðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×