Viðskipti innlent

Vaxtaákvarðanir verða teknar af peningastefnunefnd

Vaxtaákvarðanir Seðlabankans og aðrar ákvarðanir í peningamálum verða teknar af peningastefnunefnd, samkvæmt nýju frumvarpi sem hefur verið dreift á Alþingi. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum bankans og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum.

Í peningastefnunefnd munu sitja seðlabankastjóri, tveir af yfirmönnum bankans á sviði mótunar og framkvæmdar stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði peningamála sem seðlabankastjóri skipar til þriggja ára í senn að fenginni staðfestingu forsætisráðherra. Gert er ráð fyrir að Seðlabankastjóri verði jafnframt formaður peningastefnunefndar.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að einn Seðlabankastjóri verði starfandi í stað þriggja eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir. Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að Seðlabankastjóri hafi lokið meistaraprófi í hagfræði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×