Glitnir gjaldfellir öll lán Baugs 4. febrúar 2009 21:47 Jón Ásgeir Jóhannesson og Baugur hafa verið mikið til umfjöllunnar víða um heim eftir bankahrunið.
Skilanefnd Gamla Glitnis ákvað í dag að gjaldfella öll lán Baugs Group og tengdra félaga, segir í tilkynningu sem send var fjölmiðlum. Þar kemur fram að þetta hafi verið gert í framhaldi af ákvörðun skilanefndar Landsbanka Íslands hf. um að óska eftir greiðslustöðvun hjá BG Holding ehf., dótturfélagi Baugs Group hf. í Bretlandi. Skilanefnd Glitnis telji að við þær aðstæður sem nú séu uppi sé hagsmunum bankans best borgið með því að hann taki yfir þá eignarhluti í Baugi sem Gamli Glitnir hafi að veði til tryggingar lánum sínum til félagsins. Þá segir að Skilanefnd Glitnis hafi haft fjárhagslega stöðu Baugs til skoðunar um nokkurra mánaða skeið og hafi í þeim efnum notið ráðgjafar PricewaterhousCoopers og Deloitte í Bretlandi. Þrátt fyrir fjölbreyttar aðgerðir undanfarna 12 mánuði, þar sem allir hafi lagst á eitt um að styðja við félagið, blasir við í ljósi mjög veikrar fjárhagsstöðu að félagið muni ekki geta gert upp skuldir sínar við bankann. „Skilanefnd Glitnis hefur haft til skoðunar þær hugmyndir sem forsvarsmenn Baugs kynntu fyrir íslenskum lánastofnunum. Það er mat skilanefndarinnar og ráðgjafa hennar, PricewaterhouseCoopers og Deloitte í Bretlandi, að þær hugmyndir séu í senn óraunhæfar og óframkvæmanlegar. Það er jafnframt mat ofangreindra ráðgjafa og skilanefndar Glitnis, að besta leiðin til að gæta hagsmuna bankans við núverandi aðstæður, sé að vinna með öðrum veðhöfum að því að hámarka verðmæti þeirra eigna bankans sem tengjast Baugi. Með þessum aðgerðum er meðal annars verið að verja hagsmuni þeirra fyrirtækja sem Baugur er hluthafi í á Bretlandseyjum og þeirra tugþúsunda sem hjá þeim starfa," segir í tilkynningunni. Þá segir að þar sem ljóst sé að Baugi muni ekki takast að efna skuldbindingar sínar við gamla Glitni og þar sem fyrir liggi að aðrar fjármálastofnanir muni ekki taka þátt í endurskipulagningu félagsins sé það mat skilanefndar Glitnis að fyrrnefndar aðgerðir séu óhjákvæmilegar. Skilanefndin telji jafnframt að eins og málefnum félagsins sé nú komið þjóni umbeðin greiðslustöðvun Baugs Group á Íslandi ekki tilgangi.
Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Sjá meira