Spáir því að verðbólgan aukist í þessum mánuði 13. júní 2009 09:18
Gangi spá hagfræðideildar Landsbankans eftir verður 12 mánaða verðbólga 12% í júní og eykst milli mánaða eftir að hafa minnkað fjóra mánuði í röð þar á undan. Verðbólgan í síðasta mánuði mældist 11,6%. Fjallað er um málið í Hagsjá deildarinnar, Þar segir að í mælingunni nú megi búast við þó nokkrum verðhækkunum í tengslum við skattahækkanir á áfengi og eldsneyti. Einnig má búast við hækkun á innflutningsvörum s.s. matvöru, húsgögnum o.fl. Aftur á móti gerir spáin ráð fyrir hóflegum áhrifum til lækkunar vegna fasteignaliðarins. Tilkynnt hækkun áfengisverðs um 6-11% hækkar neysluverðsvísitöluna um u.þ.b. 0,25% og á deildin von á að sú hækkun skili sér að mestu í mælingunni nú í júní. Þá má búast við að hækkun á eldsneyti valdi um 0,3-0,4% hækkun á vísitölunni í mánuðinum en um er að ræða hækkun vegna skattabreytinga, gengisáhrifa og hækkunar á heimsmarkaðsverði. Krónan hefur nú veikst um rúmlega 8% frá því að síðasta verðbólgumæling fór fram um miðjan maí. Að öllum líkindum er óumflýjanlegt að hluti af þeirri veikingarhrinu skili sér inn í innflutningsverðlag og á deildin því von á þó nokkrum hækkunum á flestum innflutningsliðum. Flest bendir hinsvegar til þess að verðbólga muni haldast áfram að dragast saman þegar líður á árið og gerir spáin ráð fyrir að verðbólga muni fara að mælast í námunda við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans á fyrri hluta næsta árs. Spáin um hratt lækkandi verðbólgu byggir á áframhaldandi eftirspurnarslaka og lækkun fasteignaverðs en gengisþróun krónunnar mun svo ráða úrslitum um framhaldið. Núverandi verðbólguspá hagfræðideildar Landsbankans gerir ráð fyrir að krónan sveiflist í námunda við 170-175 krónur á evru út árið 2009.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira