Um 40% erlendra krónueigenda vilja strax út úr landinu 7. maí 2009 13:18
Bráðabirgðamat Seðlabankans á krónueignum erlendra aðila bendir til að um 40%, eða um 250 milljarðar kr. heildareigna þeirra í verðbréfum og innstæðum í krónum séu í eigu aðila sem hafa verið flokkaðir sem „óþolinmóðir" erlendir fjárfestar. Það er þeir sem vilja komast út úr landinu sem fyrst. Fjallað er um málið í ritinu Peningamál sem gefið var út í dag samhliða stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Þar segir að stór hluti af þeim eignum sem eftir eru tengist langtímabréfum og/eða fjárfestum sem líta til lengri tíma. Tölurnar endurspegla meginþorra þeirra krónueigna sem gjaldeyrishöftin hamla að streymi úr landi. Tekið er tillit til þeirra jöklabréfa sem hafa þegar fallið á gjalddaga og verið breytt í aðrar fjármálaafurðir. Aðrar eignir í jöklabréfum sem munu brátt falla á gjalddaga eiga það sammerkt að bæði greiðandi og móttakandi eru erlendir aðilar og hafa því ekki áhrif á krónueignina. Skammtímaeignirnar eru minni að vöxtum en áður var ætlað. Verði sú breyting að fjárfestar með skammtímasjónarmið og „úthneigð" víki fyrir fjárfestum sem horfa til lengri tíma, t.d. þeim sem byggja á mati sínu á núverandi og framtíðar vaxtastigi, innlendum fjárfestingartækifærum og horfum í gengismálum, ættu að skapast forsendur fyrir hagfelldari samsetningu fjárfestahóps. Vísbendingar eru um að einhverjar tilfærslur hafi þegar farið fram á aflandsmarkaðinum og þar sem skammtímastöðurnar eru takmarkaðar að vöxtum kann slík breyting að vera gerleg. Greining bankans bendir til þess að jafnvel ákvarðanir einstakra fjárfesta geti, í ljósi þess hve aflandsmarkaðurinn er þunnur, haft veruleg áhrif til þess að hækka aflandsgengið í átt að genginu á innanlandsmarkaðinum. Seðlabankinn hefur kannað úrræði sem geta stuðlað að því að gera samsetningu fjárfestahóps hagstæðari. Slík úrræði verða að lúta jafnræðissjónarmiðum og styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans enn frekar. Ef þau bera árangur stuðla þau að því að „þurrka upp" aflandsmarkaðinn.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira