Segir stjórnendur ekki hafa fengið 478 milljarða að láni 8. mars 2009 12:57 Sigurður Einarsson hafnar fréttaflutningi af lánum
Sigurður Einarsson segir að þær fjárhæðir, sem slegið er upp í frétt um lánveitingar til stærstu eigenda Kaupþings, á forsíðu Morgunblaðsins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis vísaði til í gær séu rangar. Í umfjölluninni sé ekki gerð grein fyrir veðtryggingum fyrir umræddum lánum og frádrætti vegna þessa sem kveðið sé á um í reglum um stórar áhættuskuldbindingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sigurði, en hann segir jafnframt augljóst að upplýsingarnar komi frá Fjármálaeftirlitinu. „Meðal frádráttar má nefna handveð í peningainnstæðum og verðbréfum og skuldbindingar utan efnahagsreiknings. Þess vegna eru þær upphæðir sem tilgreindar eru í fréttinni marklausar enda voru áhættuskuldbindingar bankans til umræddra aðila mun lægri en Morgunblaðið nefnir. Það er einnig rangt sem fram kemur í fréttinni að umræddar lánveitingar hafi farið til eigenda bankans. Þar ruglar blaðamaður saman skilgreiningunum "eigandi" og "stórar áhættuskuldbindingar." Einn þeirra sem Morgunblaðið tiltók í fréttinni að væri í hópi eigenda Kaupþings er Robert Tchenguiz. Það er rangt, hann var ekki einn af eigendum bankans. Fyrirsögn blaðsins "500 milljarðar til eigenda" er því staðleysa," segir Sigurður. Hann bendir á grein sem Robert Tchenguiz ritaði nýlega í Morgunblaðið þar sem hann benti á að lánveitingar til hans voru mun lægri en fullyrt hafði verið í íslenskum fjölmiðlum. Það stafaði af því að verulegur hluti skuldbindinga hans við bankann væri vegna endurhverfra verðbréfaviðskipta og framvirkra samninga sem fjármagnaðar voru af öðrum bönkum, en Kaupþing hafi haft milligöngu um viðskiptin. „Þrátt fyrir þessar útskýringar Roberts Tchenguiz heldur Morgunblaðið áfram að fara með rangt mál um umfang lántöku hans hjá Kaupþingi. Það er í einu orði sagt hryggilegt að efni úr skýrslu bankans til Fjármálaeftirlitsins skuli leka til fjölmiðla nú, rúmum sex mánuðum eftir að hún barst þangað, og að efni hennar skuli afbakað með jafn afgerandi hætti og um ræðir. Af umfjöllun síðustu vikna fæ ég ekki betur séð en að fjölmiðlum séu sendar kerfisbundið misvísandi upplýsingar um starfsemi Kaupþings. Ég og aðrir fyrrum stjórnarmenn bankans höfðum fullan skilning á mikilvægi þess að Fjármálaeftirlitið fengi upplýsingar um stórar áhættuskuldbindingar bankans, enda var þeim komið á framfæri við Fjármálaeftirlitið með reglubundnum hætti eins og lög gera ráð fyrir í trausti þess að um þær ríkti fullkominn trúnaður eins og lög áskilja," segir Sigurður. Hann segist ganga út frá því að birting Morgunblaðsins á trúnaðarupplýsingum (þótt afbakaðar séu) frá bankanum til Fjármálaeftirlitsins verði tilefni sérstakrar rannsóknar af hálfu Fjármálaeftirlitsins enda augljóslega um að ræða skýrt brot á lögum um fjármálafyrirtæki. „Án verndar fyrir svona meðferð trúnaðarrupplýsinga mun engin bankastarfsemi þrífast í landinu. Það er einnig sorglegt að sjá fjölmiðlamenn láta misnota sig ítrekað. Þeir ættu að spyrja sig hvað þeir aðilar hafi að fela sem liggur svo á að láta dómstól götunnar kveða upp úrskurð áður en rannsókn bankahrunsins lýkur," segir Sigurður.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira