Seðlabankafrumvarp sætir harðri gagnrýni frá bankastjórum 17. febrúar 2009 09:04 Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason á fundi viðskiptanefndar í morgun. Mynd/Jón Sigurður
Bankastjórar Seðlabankans, þeir Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, hafa sett umsögn sína um Seðlabankafrumvarp ríkisstjórnarinnar á heimasíðu bankans. Þar kemur fram mjög hörð gagnrýni á frumvarpið. Bankastjórarnir sitja nú sem gestir á fundi viðskiptanefndar Alþingis þar sem farið er yfir frumvarpið. Fram kemur í umsögn bankastjóranna að mjög virðist skorta á vandaðan rökstuðning í frumvarpinu og að litlar leiðbeiningar sé að finna í athugasemdum með því. Hvað varðar hæfi seðlabankastjóra sem fjallað er um í þriðju grein frumvarpsins segja þeir Davíð og Eiríkur að að kröfurnar sem gerðar eru til seðlabankastjóra séu of þröngar og óljósar til að þær geti þjónað markmiðum um að tryggja farsæla yfirstjórn við þau verkefni sem bankanum eru falin að lögum. Þá hafa þeir sitthvað að athuga við peningastefnunefnd þá sem frumvarpið gerir ráð fyrir að komið verði á fót. Gagnrýna þeir m.a. óljóst orðalag og að engin hæfisskilyrði séu sett nefndarmönnum. Í lokin segja þeir Davíð og Eiríkur að að mjög mikilvægt sé að kasta ekki til höndunum við fyrirhugaðar breytingar á lögunum um Seðlabankann. "Þar þarf að fara með mikilli gát og vandvirkni til þess að fyrirbyggja að úr verði stjórnsýslubastarður, sem geri stjórnin óskilvirka og valdi tortryggni innan sem utan bankans," segir í niðurlagi umsagnarinnar.
Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Sjá meira