Innlent

Þrjú kynferðisbrot til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi

Helga Arnardóttir skrifar
Tvær nauðganir og ein nauðgunartilraun eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi eftir helgina. Fimmtán ára stúlka kærði nauðgun til lögreglunnar á laugardagsmorgun.

Meint nauðgun átti sér stað föstudagsnótt á tjaldstæðinu í Úthlíð í Biskupstungum. Árásarmaðurinn var handtekinn og yfirheyrður en sleppt að loknum yfirheyrslum. Stúlkan leitaði til neyðarmóttöku nauðgana.

Önnur stúlka undir tvítugu kærði nauðgun til lögreglunnar á Hvolsvelli í gærdag. Karlmaður á svipuðum aldri var handtekinn vegna málsins. Meint nauðgun átti sér stað á Kirkjubæjarklaustri snemma í gærmorgun.

Fimmtán ára stúlka kærði tilraun til nauðgunar í gærdag en árásin á að hafa átt sér stað í uppsveitum Árnessýslu aðfaranótt sunnudags. Rannsóknin er á frumstigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×