Innlent

Mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögbanninu er mótmælt í ályktuninni. Mynd/ Pjetur.
Lögbanninu er mótmælt í ályktuninni. Mynd/ Pjetur.
Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins sem byggja á gögnum frá lánanefnd Kaupþings í aðdraganda efnahagshrunsins.

„Lögbannið er fráleitt, gengur gegn hagsmunum almennings og hefur þann eina tilgang að þagga niður fréttaflutning um hrunið, aðdraganda þess og eftir atvikum ábyrgðarmenn," segir í ályktun frá félögunum.

Segjast félögin telja að ef lögbannið verði staðfest af dómstólum þurfi Alþingi að breyta lögum um bankaleynd tafarlaust til að tryggja eðlilega og lýðræðislega umræðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×