Innlent

Lögreglan óskar aðstoðar við rannsókn 11-11 ránsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan þarf að ná tali af ökumanni vínrauðs bíls sem var á gatnamótum Skipholts og Háteigsvegar. Mynd/ Stefán.
Lögreglan þarf að ná tali af ökumanni vínrauðs bíls sem var á gatnamótum Skipholts og Háteigsvegar. Mynd/ Stefán.

Tveir menn voru við vinnu í 11-11 versluninni í Skipholti þegar tveir ræningjar vopnaðir hnífum ógnuðu þeim og flúðu á brott með þýfi. Starfsmennina sakaði ekki, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Ræningjarnir flúðu á tveggja dyra bláum smábíl, sem líklegast er dældaður á hægri hlið. Við gatnamótin við Skipholt og Háteigsveg var bláu bifreiðinnni ekið í veg fyrir vínrauðan fólksbíl.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ökumaður vínrauða fólksbílsins gefi sig fram við lögreglu. Einnig ef að vitni voru að ráninu eða flótta ræningjanna. Hafa skal samband við lögregluna í síma 4441104.








Tengdar fréttir

Vopnað rán í 11-11

Tveir menn réðust vopnaðir hníf inn í 11-11 verslun í Skipholti um ellefuleytið í morgun. Mennirnir eru taldir vera um tvítugt. Þeir ógnuðu starfsfólki verslunarinnar, tóku með sér eitthvað þýfi og óku svo á brott á bláleitum smábíl. Lögreglumaður sem fréttastofa náði tali af sagðist ekki vita hversu mikið þýfi hefði verið tekið úr versluninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×