FME: Ekki tilkynnt sérstaklega að forstjórinn væri regluvörður 3. apríl 2009 11:49 Höskuldur Ásgeirsson, fyrrverandi forstjóri Nýsis.
Fjármálaeftirlitinu barst ekki sérstök tilkynning um að Höskuldur Ásgeirsson, þáverandi forstjóri Nýsis, hefði verið ráðinn regluvörður félagsins. Stofnunin rannsakar málið. Þetta kemur fram í athugasemd frá FME vegna fréttar á Vísi í gær. Þar var greint frá því að forstjóri Nýsis hefði einnig verið regluvörður félagsins. Starfi regluvarðar má líkja við innra eftirlit fyrirtækis og því ekki heppilegt að forstjóri gegni því starfi þar sem ætla má að slíkt fyrirkomulag veki spurningar um hæfi regluvarðar og sjálfstæði hans gagnvart stjórnendum félagsins. Því má draga verulega í efa að slíkt fyrirkomulag fullnægði kröfum Fjármálaeftirlitsins og reglum um sjálfstæði og hlutverk regluvarðar. Í fréttinni frá því í gær segir að Fjármálaeftirlitinu hafi ekki verið kunnugt um nein dæmi þess forstjóri sé jafnframt regluvörður. Í athugasemd FME er bent á að svar stofnunarinnar hafi verið á þá leið að FME hafi ekki verið kunnugt um tilvik þar sem „tilkynnt hefur verið að forstjóri félags sé jafnframt regluvörður þess." Það er að segja, FME vissi af fyrirkomulaginu en Nýsir hafði ekki tilkynnt stofnuninni það sérstaklega. Reglur um innherjaupplýsingar og viðskipti innherja kveða á um að ráðningu regluvarðar og vararegluvarðar skuli tilkynna til FME. „Innherjalistar eru sendir rafrænt í gegnum skýrsluskilakerfi Fjármálaeftirlitsins, á þar til gerðum eyðublöðum og birtist listi yfir fruminnherja sjálfkrafa á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Aðgangur að skýrsluskilakerfi Fjármálaeftirlitsins er bundinn við aðgang og lykilorð sem úthlutað er starfandi regluverði. Þegar regluvörður lætur af störfum ber því að senda upplýsingar um nýjan regluvörð og óska eftir að stofnaður sé nýr aðgangur fyrir viðkomandi. Jafnframt ber að loka eldri aðgangi," segir í athugasemd FME. FME segir að í tilfelli Nýsis hafi engin sérstök tilkynning borist vegna ráðningar Höskuldar Ásgeirssonar í starf regluvarðar félagsins og ekki var óskað eftir nýjum aðgangi fyrir regluvörðinn. Umræddur innherjalisti barst Fjármálaeftirlitinu í júlí 2008 en Höskuldur Ásgeirsson lét af störfum hjá Nýsi hf. í nóvember 2008. Þess má geta að þrátt fyrir að Höskuldur hafi látið af starfi forstjóra Nýsis fyrir nokkru og starfi nú fyrir sjávarútvegsfyrirtæki í Bretlandi er hann enn skráður sem regluvörður félagsins samkvæmt upplýsingum FME.
Tengdar fréttir Forstjóri Nýsis einnig regluvörður félagsins Forstjóri Nýsis var regluvörður félagsins. Fjármálaeftirlitinu er ekki kunnugt um nein dæmi um að forstjóri sé jafnframt regluvörður, enda þótt upplýsingar um Nýsisforstjórann liggi á heimasíðu eftirlitsins. 2. apríl 2009 12:04 Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira
Forstjóri Nýsis einnig regluvörður félagsins Forstjóri Nýsis var regluvörður félagsins. Fjármálaeftirlitinu er ekki kunnugt um nein dæmi um að forstjóri sé jafnframt regluvörður, enda þótt upplýsingar um Nýsisforstjórann liggi á heimasíðu eftirlitsins. 2. apríl 2009 12:04