Högnuðust ekki á gengislækkun krónunnar 14. janúar 2009 12:08 Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið hefur rannsakað hvort ákveðnir aðilar hafi með ólögmætum hætti hagnast á gengislækkun krónunnar í upphafi síðasta árs. Niðurstaðan leiddi í ljós að svo var ekki. Í mars á síðasta ári var niðursveiflu farið að vera vart í efnahagslífi landsins. Stýrivextir Seðlabankans voru komnir í fimmtán prósent, hærri en í öllum hinum vestræna heimi, skuldatryggingarálag hafði snarhækkað og gengi krónunnar tók snarpa dýfu. Krónan veiktist um tæp tíu prósent á rúmum hálfum mánuði Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði þá að verið væri að kanna vísbendingar um hvort ábyrgir aðilar hefðu vísvitandi reynt að fella gengi krónunnar. „Lyktar óþægilega af því að óprúttnir miðlarar hafi ákveðið að gera úrslitatilraun til að brjóta niður íslenska fjármálakerfið. Þeim er ekki að takast það en til álita hlýtur að koma að gera alþjóðlega opinbera rannsókn á slíku tilræði við heilbrigð fjármálakerfi," sagði Davíð. Seðlabankinn sendi upplýsingar á Fjármálaeftirlitið til að það gæti rannsakað hvort að einhverjir aðilar hefðu vísvitandi verið að reyna að hafa áhrif á gengi krónunnar. Fréttastofa leitaði eftir svörum frá Fjármálaeftirlitinu um hvort að rannsókninni væri lokið og hver niðurstaðan hefði. Í svari sem barst frá eftirlitinu segir að það hafi kannað hvort að ákveðnir aðilar hafi mánuðina fyrir vorið 2008 stuðlað að og reynt að hagnast á gengislækkun krónunnar með ólögmætum hætti. Við athugun hafi ekki komið fram vísbendingar um slíkt. Fjármálaeftirlitið muni hins vegar rannsaka frekar, eða gera viðeigandi yfirvöldum viðvart, komi fram upplýsingar í yfirstandandi athugunum þess, sem benda til mögulegra lögbrota.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira