Marelhlutur keyptur með aflandskrónum 1. október 2009 12:14
Eignarstýringarfélagið Columbia Wanger Asset Management (CWAM) útvegaði sér krónur á aflandsmarkaði til þess að kaupa 5,2% eignarhlut í Marel fyrr í vikunni. Áætla má að gengishagnaður CWAM af þessum sökum sé í kringum 200 milljónir kr. Ljóst er að þessi kaup CWAM á aflandsmarkaðinum í vikunni eru sennilega ein helsta ástæða þess að gengi krónunnar styrktist töluvert þar í vikunni. Greiningardeild Íslandsbanka og Hagfræðideild Landsbankans fjölluðu bæði um málið í gærdag. Hjá þeim kom fram að gengi krónunnar á aflandsmarkaðinum hefði styrkst úr 210 krónum fyrir evruna og niður í 190 til 200 krónur. CWAM festi kaup á samtals tæplega 32,2 milljónum hluta í Marel sem jafngildir 5,2% eignarhlut. Viðskiptin fara fram á genginu 59,0. Verðið var sum sé um 1,9 milljarður kr. Ef CWAM hefði borgað fyrir hlutinn í evrum á gengi Seðlabankans væri kaupverðið um 10,5 milljónir evra. Með því að breyta kaupverðinu úr evrum, eða dollurum, og í krónur á aflandsmarkaðinum var hægt að fá 2,1 milljarð kr. fyrir þær m.v. að gengið væri 200 kr. fyrir evruna. Mismunurinn þarna á milli er hreinn hagnaður fyrir CWAM. Hér má nefna að Hagfræðideild Landsbankans greindi frá því að viðskipti með krónur hefðu numið um 2 milljörðum kr. á dag, tvo daga í röð. Passar það við að CWAM hafi útvegað sér sínar krónur á öðrum af þessum dögum. Það er líka athyglisvert í þessu sambandi að hagnaður CWAM í þessu tilviki er einnig hagnaður þjóðarbúsins í heild. Greining Íslandsbanka og Hagfræðideild Landsbankans sögðu báðar að styrking á gengi krónunnar á aflandsmarkaði væri af hinu góða. „Ljóst að mikið hefur dregið úr ávinningi viðskipta með gjaldeyri fram hjá gjaldeyrishöftunum," sagði hagfræðideildin og „hinsvegar má draga þá ályktun af þróun krónunnar á aflandsmarkaði að líkur á verulegu gengisfalli við afnám gjaldeyrishafta hafi minnkað undanfarið," sagði greining Íslandsbanka.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira