Viðskipti innlent

SPRON stefnir að sameiningu við dótturfélög

Stjórn SPRON vill stefna að sameiningu dótturfélaga þess, Frjálsa Fjárfestingabankans og SPRON verðbréfa við móðurfélagið. Í tilkynningu frá SPRON segir að sameiningarnar séu liður í þeim skipulagsbreytingum sem unnið hafi verið að, að undanförnu en markmið þeirra sé að SPRON verði betur í stakk búið til þess að mæta breyttu rekstrarumhverfi og ná fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg sé við núverandi aðstæður. Unnið verður að sameiningu félaganna á næstu vikum. Netbankinn verður áfram starfandi í óbreyttri mynd sem sjálfstætt dótturfélag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×