Hafnarfjörður tapaði 347 milljónum fyrrihluta ársins 9. október 2009 15:22
Milliuppgjör Hafnarfjarðarbæjar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins hefur verið lagt fram en samkvæmt niðurstöðutölum þess eru rekstrartekjur í góðu samræmi við áætlun. Afkoma rekstrarreiknings er neikvæð um 138 milljónir í samstæðu en um liðlega 347 milljónir í A-hluta, þe. aðalsjóði og eignasjóði. Í tilkynningu segir að helstu frávik í rekstri frá áætlun koma fram í auknum útgjöldum til félagsmála, framfærslu og húsaleigubóta sem hafa hækkað um nær 100% frá sama tíma á sl. ári. Þessi mikla hækkun er töluvert umfram það sem áætlað hafði verið. Þá fer einnig launakostnaður í skólakerfi nokkuð umfram áætlun og kostnaður vegna sumarstarfa unglinga. Meginástæða þessa skýrist m.a. af því að samþykkt hagræðing á þessum málasviðum og endurskoðun á fjárhagsáætlun kemur ekki til fyrr en á síðari hluta ársins. Kostnaðartölur fyrir nýliðna mánuði sína að sú hagræðing sem lagt var upp með er að skila sér að stórum hluta. Fjárfestingar á fyrri hluta ársins eru nær eingöngu vegna áframhaldandi byggingar við íþróttamiðstöðina í Kaplakrika, sem hófst fyrir rúmum tveimur árum. Þá standa Fráveita og Vatnsveita Hafnarfjarðar í nokkrum verkum, en auk þess sem á fyrir hluta ársins var lokið við verkefni í leik- og grunnskólum, auk sundlaugarmannvirkja. Viðhaldsverkefni hafa verið nokkur í sumar tengt fasteignum bæjarins, en þó minni en umliðin ár. Ekki hefur verið leiðrétt í milliuppgjöri vegna endurmats á eignum sveitarfélagsins. Við endurskoðun fjárhagsáætlunar var sú víðtæka vinna sett af stað. Eignamatið hefur ekki verið skoðað í nokkur ár. Duldar eignir liggja einnig hátt í tug milljarða í lóðum og löndum en lóðaskil hafa verið veruleg á umliðnum mánuðum, þó mest á árinu 2008. Er endurgreiðslan með verðbótum nær 7 milljörðum og hefur bæjarráð óskað eftir sérstakri greinargerð vegna eignamyndurnar í gatnagerð og lóðum. Gengishrun krónunnar og hátt verðbólgustig ráða mestu um aukningu á skuldum og fjármagskostnaði sveitarfélagins en samhliða víðtækri vinnu við hagræðingu á öllum rekstrarsviðum bæjarfélgasins er einnig unnið að skuldbreytingum lána og endurfjármögnun.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira