Landsbankinn gefur kost á lækkun erlendra fasteignalána Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 9. október 2009 12:05
Fólk með erlend fasteignalán hjá Landsbankanum geta fengið lækkun á höfuðstól við skuldbreytingu í óverðtryggð krónulán, líkt og hjá Íslandsbanka. Enn er óljóst hvort Kaupþing býður viðskiptavinum sínum upp á að leiðréttingu fasteignalána. Íslandsbanki upplýsti í síðustu viku að hann hyggðist - fyrstur íslenskra lánastofnana - bjóða viðskiptavinum upp á leiðréttingar á höfuðstólum fasteignalána. Viðskiptavinir bankans geta frá næstu mánaðamótum óskað eftir því að breyta fasteignalánum í óverðtryggð krónulán og við þá breytingu verða höfuðstólar gengislána færðir niður um 25% og 10% á verðtryggðum lánum. Skömmu síðar kynnti ríkisstjórnin sínar aðgerðir sem felast í lækkun greiðslubyrði lána, þ.e. fólk getur óskað eftir því, hjá hvaða banka sem er, að lækka mánaðarlegar afborganir. Á verðtryggðum lánum verður greiðslan miðuð við 1. janúar í fyrra en gengistryggð í maí í fyrra. Með þessari leið hækka eftirstöðvarnar hraðar - hins vegar er sett þriggja ára þak á lengingu lánstímans. Kaupþing og Landsbanki höfðu ekkert ákveðið í síðustu viku hvort þeirra viðskiptavinir gætu fengið leiðréttingar á höfuðstólum. Fréttastofa ítrekaði í dag fyrirspurnir sínar. Hjá Kaupþingi fengust þær upplýsingar að þar sæti hópur manna við að reikna hvort og þá hvaða aðgerðir bankinn getur gripið til í þessum efnum. Landsbankinn hefur hins vegar ákveðið að bjóða fólki með myntkörfulán að skuldbreyta þeim í óverðtryggð krónulán og verður þá einhver leiðrétting á höfuðstól. Óvíst er hversu mikil leiðréttingin verður. Landsbankinn ætlar hins vegar ekki að leiðrétta höfuðstóla verðtryggðra krónulána.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira