Hraðinn í fólksfækkun á landinu færist í aukana 9. október 2009 11:18
Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 318.906 talsins 1. október síðastliðinn. Hafði þeim þá fækkað um 340 frá miðju ári þegar þeir voru 319.246. Hraðinn í fólksfækkuninni virðist hafa aukist eftir því sem liðið hefur á árið en á fyrri helmingi árs fækkaði landsmönnum um 122. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að svo virðist sem áhrif kreppunnar á fólksfjöldann í landinu sé að ígerast eftir því sem hún dýpkar og verður meira langvarandi. Er vel þekkt að í kreppum tekur nokkurn tíma fyrir íbúa að taka sig upp og flytja sökum efnahagsástandsins. Má reikna með því að eftir því sem kreppan verði meira langvarandi og þá sérstaklega atvinnuleysið viðvarandi þá muni búferlaflutningar færast í aukanna og landsmönnum fækka. Það getur einnig aukið á þessi áhrif að botni samdráttarskeiðs virðist nú hafa verið náð í mörgum nágrannalanda okkar og sjá menn þar fram á betri tíð á komandi misserum. Líklegt er að í ofangreindum tölum sé einungis kominn forsmekkur þess sem koma skal í þessari kreppu. Kreppan hefur komið illa niður á karllægum atvinnuvegum á borð við byggingariðnaðinn. Samdrátturinn þar hefur verið gríðarlegur á stuttum tíma og mikið um uppsagnir starfsmanna. Mikið af erlendu vinnuafli var flutt inn til að svara vaxandi vinnuaflseftirspurn þessara greina í uppsveiflu síðustu ára. Nú hefur það snúist við. Þannig hefur karlmönnum á aldursbilinu 15-64 ára fækkað um 985 frá áramótum eða um 0,9%. Á sama tíma hefur konum í sama aldurshópi fjölgað um 458 eða 0,4%. Í heild hefur karlmönnum fækkað um 910 í ár en konum hins vegar fjölgað um 448. Heildarfjöldi karla í landinu var 161.158 í upphafi október síðastliðinn en konur voru á sama tíma 157.748 talsins.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira