Viðskipti innlent

Hagnaður hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ.
Hagnaður af rekstri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum nam 7,2 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Eigið fé Sambandsins í lok júní 2009 nam 70,4 milljónum króna.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á

Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er

breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma.

Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiss konar

verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi

sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500

milljónir króna. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að.

Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun ríkissjóður greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna.

Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok júní 2009 námu eftirstöðvar lánsins 325 milljónum króna og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×