Strætósamgöngur og bílastæði Ari Tryggvason skrifar 17. febrúar 2009 13:34 Þann 1.febrúar síðastliðinn var ferðum fækkað um kvöld og helgar hjá Strætó BS. En hægt og bítandi leiðir efnahgsástand þjóðarinnar æ fleir til strætó. Þorri fólks hefur ekki lengur efni á þeim samgöngulúxus sem viðgengist hefur hér. Samhliða þessari þjónustuskerðingu er ekkert lát á bílastæðisvæðingu samfélagsins. Til marks um það eru bílastæði hins nýja Háskóla Reykjavíkur í Öskjuhlíðinni. Stæðin eru undir berum himni, sem krefst gríðarlegs landflæmis til skaða fyrir fólk og umhverfi. Væntanlega eru stæðin gjaldfrjáls. Mjög gróflega áætlað hefur t.d.Háskóli Íslands um 2500 bílastæði til umráða. Talið er að kostnaður við hvert bílastæði sé um 20þús. kr. á mánuði. Miðað við nýtingu skólaársins gæfi það 450miljónir króna árlega. Ennfremur er mikilvægt að endurskoða þá byggingarlöggjöf sem gildir nú, þar sem gert er ráð fyrir tveim bílastæðum með hverri íbúð. Slíkar reglur gera ekkert annað en að festa einkabílinn í sessi sem samgöngutæki og er um leið hamlandi gagnvart strætósamgöngum. Með þessari þjónustuskerðingu leggjast strætóferðir nánast af með leið 23 útá Álftanes og til Vífilsstaða. Einungis verða þrjár ferðir í boði útá Álftanes á morgnana og fimm síðdegis og enn færri til Vífilsstaða. Engin þjónusta verður á kvöldin og um helgar. Fyrir bragðið verða börn og unligar ennþá háðari skutli foreldra sinna eða freistast jafnvel til að fara á puttanum. Það er brýnt að samgönguráðuneytið taki þátt í þróun strætósamgangna á höfuðborgarsvæðinu, vegna þess að það er ekki einungis hagur höfuðborgarsvæðisins, heldur allra landsmanna. Höfuðborgin er andlit þjóðarinnar útá við og er strætósamgöngur mikilvægur þáttur í aðdráttarafli hennar. Á seinasta ári fóru erlendir ferðamenn fyrsta sinn yfir 500þús. Sýnum þjóðinni og heiminum að við lærum af þeirri gríðarlegu efnahagskreppu sem þjóðin á við að glíma og bökkum aðeins út úr þeirri dýru einkabílasamgönguhyggju sem hér hefur ríkt undanfarna áratugi. Gerum meðalfjölskyldu kleift að láta einn bíl duga með öflugra strætókerfi. Nýtum þannig þá fjármuni sem gætu sparast í gatnagerð og viðhald þess í fullkomnari strætósamgöngur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Þann 1.febrúar síðastliðinn var ferðum fækkað um kvöld og helgar hjá Strætó BS. En hægt og bítandi leiðir efnahgsástand þjóðarinnar æ fleir til strætó. Þorri fólks hefur ekki lengur efni á þeim samgöngulúxus sem viðgengist hefur hér. Samhliða þessari þjónustuskerðingu er ekkert lát á bílastæðisvæðingu samfélagsins. Til marks um það eru bílastæði hins nýja Háskóla Reykjavíkur í Öskjuhlíðinni. Stæðin eru undir berum himni, sem krefst gríðarlegs landflæmis til skaða fyrir fólk og umhverfi. Væntanlega eru stæðin gjaldfrjáls. Mjög gróflega áætlað hefur t.d.Háskóli Íslands um 2500 bílastæði til umráða. Talið er að kostnaður við hvert bílastæði sé um 20þús. kr. á mánuði. Miðað við nýtingu skólaársins gæfi það 450miljónir króna árlega. Ennfremur er mikilvægt að endurskoða þá byggingarlöggjöf sem gildir nú, þar sem gert er ráð fyrir tveim bílastæðum með hverri íbúð. Slíkar reglur gera ekkert annað en að festa einkabílinn í sessi sem samgöngutæki og er um leið hamlandi gagnvart strætósamgöngum. Með þessari þjónustuskerðingu leggjast strætóferðir nánast af með leið 23 útá Álftanes og til Vífilsstaða. Einungis verða þrjár ferðir í boði útá Álftanes á morgnana og fimm síðdegis og enn færri til Vífilsstaða. Engin þjónusta verður á kvöldin og um helgar. Fyrir bragðið verða börn og unligar ennþá háðari skutli foreldra sinna eða freistast jafnvel til að fara á puttanum. Það er brýnt að samgönguráðuneytið taki þátt í þróun strætósamgangna á höfuðborgarsvæðinu, vegna þess að það er ekki einungis hagur höfuðborgarsvæðisins, heldur allra landsmanna. Höfuðborgin er andlit þjóðarinnar útá við og er strætósamgöngur mikilvægur þáttur í aðdráttarafli hennar. Á seinasta ári fóru erlendir ferðamenn fyrsta sinn yfir 500þús. Sýnum þjóðinni og heiminum að við lærum af þeirri gríðarlegu efnahagskreppu sem þjóðin á við að glíma og bökkum aðeins út úr þeirri dýru einkabílasamgönguhyggju sem hér hefur ríkt undanfarna áratugi. Gerum meðalfjölskyldu kleift að láta einn bíl duga með öflugra strætókerfi. Nýtum þannig þá fjármuni sem gætu sparast í gatnagerð og viðhald þess í fullkomnari strætósamgöngur.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar