Eignir BG Holding duga fyrir um 10% af heildarkröfum í þrotabú Baugs 25. ágúst 2009 16:02 Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs.
Eignir BG Holding, dótturfélags Baugs á Bretlandi, duga fyrir rétt tæplega 10 prósent af heildarkröfum í þrotabú félagsins, samkvæmt verðmati PricewaterhouseCoopers á eignum BG Holding. Verðmatið var unnið fyrir skilanefnd Landsbankans snemma á þessu ári. Verðmæti helstu eigna BG Holding er samkvæmt skýrslunni 31,5 milljarðar króna en allar helstu eignir Baugs eru skráðar hjá dótturfélaginu. Eins og Vísir greindi frá í gær nemur heildarfjárhæð allra krafna í þrotabú Baugs rúmlega 316,6 milljörðum króna. Af þessari upphæð, nema veðkröfur tæplega 123,9 milljörðum króna. Eignir BG Holding koma til með að ganga upp í veðkröfurnar en helstu eignir BG Holding eru Iceland Food, Hamleys, House of Fraser og Goldsmiths. Samkvæmt heimildum fréttastofu á Gamli Landsbankinn fyrsta veðrétt í öllum þessum eignum. Aðrir kröfuhafar eru aftar í veðröðinni. Skilanefnd Landsbankans gekk að veðum BG Holding í byrjun febrúar á þessu ári og hefur félagið verið í greiðslustöðvun síðan þá. Þann 8. febrúar síðastliðinn hafði breska dagblaðið Guardian upp úr skýrslu PricewaterhouseCoopers, sem unnin var fyrir skilanefnd Landsbankans, að 150 milljónir punda fengjust fyrir eignir Baugs hefðu þær verið seldar á þeim tíma. Í dag jafngildir það um 31,5 milljörðum króna. Miðað við það verðmat duga eignir BG Holding fyrir rétt tæplega 10 prósent af heildarkröfum í þrotabú Baugs. Samkvæmt heimildum fréttastofu á ekki að selja ofangreindar eignir í því árferði sem nú ríkir á fjármálamörkuðum. Þeim verður því ekki ráðstafað úr þrotabúi Landsbankans fyrr en að nokkrum árum liðnum. Nýtt verðmat hefur ekki verið gert á þessum eignum.
Tengdar fréttir Gjaldþrot Baugs það stærsta hjá einkafyrirtæki hér á landi Gjaldþrot Baugs er stærsta gjaldþrot einkafyrirtækis hér á landi. Kröfur í þrotabúið nema á þriðja hundrað milljörðum íslenskra króna. 20. ágúst 2009 18:30 Heildarfjárhæð krafna í þrotabú Baugs nemur 317 milljörðum Heildarfjárhæð allra krafna í þrotabú Baugs nemur rúmlega 316,6 milljörðum króna. Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú Baugs hf. rann út þann 16. ágúst síðastliðinn. 24. ágúst 2009 15:23 Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira
Gjaldþrot Baugs það stærsta hjá einkafyrirtæki hér á landi Gjaldþrot Baugs er stærsta gjaldþrot einkafyrirtækis hér á landi. Kröfur í þrotabúið nema á þriðja hundrað milljörðum íslenskra króna. 20. ágúst 2009 18:30
Heildarfjárhæð krafna í þrotabú Baugs nemur 317 milljörðum Heildarfjárhæð allra krafna í þrotabú Baugs nemur rúmlega 316,6 milljörðum króna. Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú Baugs hf. rann út þann 16. ágúst síðastliðinn. 24. ágúst 2009 15:23