Sex af tíu stærstu fjárfestingum Straums voru í fyrirtækjum tengdum Björgólfi Sigríður Mogensen skrifar 23. september 2009 19:39 Björgólfur Thor Björgólfsson var stjórnarformaður Straums. Mynd/ Valgarður.
Sex af tíu stærstu fjárfestingum Straums voru um tíma í fyrirtækjum í eigu eða tengdum Björgólfi Thor Björgólfssyni. Verðmæti fjárfestinganna er um níutíu milljarðar. Björgólfur var jafnframt stærsti eigandi bankans. Björgólfur Thor Björgólfsson var sem kunnugt er stærsti eigandi Straums ásamt föður sínum. Björgólfur var auk þess stjórnarformaður Straums þegar Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir. Á listanum yfir tíu stærstu fjárfestingar Straums í skráðum og óskráðum félögum, frá því snemma árs 2008, eru í það minnsta sex félög tengd Björgólfi Thor. Hér er í fyrsta lagi um að ræða Landsbankann, Novator Pharma Holding og Novator Credit Fund. Þá voru félögin Play, Netia og CCP í eigu Novator One sem Novator, félag Björgólfs, rak. Novator fékk hlutdeild í hagnaði sjóðsins. Hér er um að ræða fjárfestingar að verðmæti 90 milljarða króna. Að Landsbankanum frátöldum eru sumar þessara fjárfestinga enn talsvert verðmætar. Vogunarsjóðurinn Boreas Capital Fund er einnig á listanum yfir stærstu fjárfestingar Straums. Sá sjóður fjárfesti meðal annars í Tanganyika Oil Company og Net Entertainment. Boreas Capital hefur verið kenndur við Ragnar Þórisson og Frank Pitt, sem eru vinir og viðskiptafélagar Björgólfs. Samkvæmt upplýsingum frá Novator er Björgólfur Thor ekki tengdur Boreas Capital, Tanganyika Oil Company né Net Entertainment. Þess má geta að flestar þessara fjárfestingaákvarðana Straums voru teknar á árunum 2005 og 2006, en þá var bankinn aðallega rekinn sem fjárfestingabanki.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira