Íslandsbanki og Landsbanki afskrifa um 3 milljarða vegna Árvakurs 2. mars 2009 18:49
Íslandsbanki og Landsbankinn munu afskrifa um þrjá milljarða króna af skuldum útgáfufélags Morgunblaðsins. Heildarskuldir félagsins við ríkisbankana tvo eru tæpir fimm milljarðar. Félag í eigu Óskars Magnússonar og fleiri aðila, hefur gengið frá samkomulagi við Íslandsbanka um kaup á Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Heimildir fréttastofu herma að kaupverð sé 2 milljarðar króna. Samkvæmt gögnum sem fréttastofa hefur undir höndum nema skuldir Árvakurs við Íslandsbanka og Nýja Landsbankann samtals rúmum 4,6 milljörðum króna, og eru afskriftir ríkisbankanna tveggja því tæpir 3 milljarðar. Skuld Árvakurs við Íslandsbanka nemur 3,7 milljörðum króna og skuldin við Nýja Landsbanka er rúmar 860 milljónir. Kaupverð er talið um 2 milljarðar króna en af því eru 300 milljónir vegna nauðsynlegrar hlutafjáraukningar. Eftir standa 1,7 milljarðar króna sem fást þá upp í skuldir við ríkisbankana en það þýðir að afskriftir nema samtals 2,9 milljörðum. Þegar leitað var til Nýja Landsbankans vegna málsins fengust þau svör að vegna bankaleyndar gæti bankinn ekki gefið upplýsingar um Árvakur. Þess má geta að Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrum stjórnarformaður Glitnis, er meðal hluthafa í Þórsmörk ehf., nýja eiganda Morgunblaðsins. Árvakur er fyrsta félagið sem hefur verið selt út úr bönkunum eftir að þeir voru þjóðnýttir.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira