Viðskipti innlent

Lengi í skoðun hjá Straumi að flytja úr landi

Straumur hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar um áform bankans að flytja úr landi. Þar segir að það hafi verið skoðað undanfarin misseri að skrá hlutabréf bankans í erlenda kauphöll. Jafnframt er áréttað að engin ákvörðun hafi verið tekin um málið.

"Vegna frétta um hugsanlegan flutning Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. frá Íslandi skal tekið fram að undanfarin misseri hefur það verið til skoðunar innan bankans að skrá hlutabréf hans í erlendri kauphöll. Jafnframt hefur komið til álita að endurskipuleggja Straumssamstæðuna þannig að móðurfélag samstæðunnar verði staðsett utan Íslands," segir í tilkynningunni.

„Í þessu samhengi hefur verið haft í huga að stærstur hluti starfsemi bankans á samstæðugrunni fer í raun fram utan Íslands auk þess sem eignir bankans eru að mestu erlendar. Ástæða er til að árétta að engin ákvörðun um endurskipulagningu af þessum toga hefur verið tekin í stjórn félagsins og engar breytingar eru fyrirsjáanlegar á þessari stundu.

Ennfremur er vert að benda á að Straumur hyggst hvað sem öðru líður halda áfram að reka öflugan fjárfestingabanka á Íslandi og taka virkan þátt í þeirri uppbyggingu sem hér er framundan."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×