1,2 milljarðar í tap hjá Nýjerja - fjármagnsgjöld aukast verulega 23. janúar 2009 20:26 MYND/Anton
Tap Nýherja á síðasta ári nemur 1.201 milljónir króna samanborið við hagnað upp á 420 milljónir árið 2007. Hrein fjármagnsgjöld voru 1.480 milljónir í samanburði við rúmlega 92 milljónir á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem birt var í dag. Í tilkynningu frá Nýherja segir að hækkun á fjármagnsgjöldum megi rekja til 80% lækkunar krónunnar á tímabilinu og meiri skuldsetningar samstæðunnar vegna kaupa á fyrirtækjum. Í tilkynningunni kemur einnig fram að tekjur af erlendri starfsemi hafi numið 3.517 milljónum eða 24% af heildartekjum. Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja segir að rekstur og afkoma Nýherja á fjórða ársfjórðungi beri merki „þeirra skyndilegu sviptinga, sem urðu í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja eftir fall bankanna í október og stórfellda lækkun á verðgildi íslensku krónunnar." Hann segir að sú skyndilega breyting sem varð á rekstrarumhverfinu á Íslandi hafi haft umtalsverð áhrif á reksturinn. Nýherji greip í október til fjölþættra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað og styrkja rekstur móðurfélagsins og dótturfélaga, svo sem með tilkynningu um að lækka laun starfsmanna um 10% frá 1. febrúar og slá á frest frekari verkefnum í hugbúnaðarþróun hérlendis og erlendis. „Gert er ráð fyrir að aðgerðir sem kynntar hafa verið muni leiða til yfir 600 mkr kostnaðarlækkunar í rekstri samstæðunnar á Íslandi á árinu 2009," segir einnig.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira