Viðskipti innlent

NBI tryggir líf fyrirtækja

Nýi Landsbankinn hefur lagt fram leiðbeiningar um hvernig brugðist skuli við greiðsluerfiðleikum viðskipavina.
Nýi Landsbankinn hefur lagt fram leiðbeiningar um hvernig brugðist skuli við greiðsluerfiðleikum viðskipavina.

Landsbankinn (NBI) mun velja samningaleið um lausn skuldamála fyrirtækja í greiðsluerfiðleikum sé þess kostur fremur en að láta þau fara í þrot. Í einhverjum tilvikum verður ekki hjá því komist að taka einhver yfir.

Þetta kemur fram í nýjum leiðbeiningum bankans um aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja og bankaráð NBI hefur samþykkt og birti í gær. Bankinn fylgir þar fordæmi Glitnis, en stjórn hans samþykkti slíkar reglur í desember síðastliðnum.

Bankarnir hafa stofnað umsýslufélög fyrir lífvænleg fyrirtæki sem hafa lent í greiðsluerfiðleikum og þeir tekið yfir. Yfirtaka verður gerð með það fyrir augum að tryggja rekstur fyrirtækjanna og tryggja vinnu starfsfólks, líkt og segir í reglum bankans. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×