Viðskipti innlent

Raungengi krónunnar er 30% undir langtímameðaltali

Raungengi krónunnar er nú um 30% undir meðaltali síðustu áratuga. Raungengi krónunnar hefur lækkað mikið eða um ríflega 40% frá miðju ári 2007, þegar hin alþjóðlega fjármálakreppa fór að gera vart við sig hér á landi.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að raungengisþróunin sýni hvað vörur og þjónusta á Íslandi hefur lækkað í verði í samanburði við vöru og þjónustu í öðrum löndum. Lætur nærri að landið sem áður þótti afar dýrt í alþjóðlegum samanburði heim að sækja sé orðið hið ódýrasta meðal landa Vestur-Evrópu.

Þessi staðreynd hjálpar nú þeim innlendu atvinnugreinum sem eru í samkeppni við erlendar og ekki síst útflutningsatvinnuvegunum. Lækkun raungengisins ætti að hjálpa til við að endurreisa hagvöxtinn sem þá verður að miklu leyti byggður á aukinni verðmætasköpun í þessum greinum. Litið til lengri tíma má reikna með því að raungengi krónunnar færist aftur að meðaltali sínu til lengri tíma þ.e. þegar uppbyggingin er eitthvað á veg komin eftir hrun bankakerfisins.

Sagan kennir að bankakreppum fylgir oft talsverð lækkun gjaldmiðilsins sem er í leiðinni tímabundin. Því má reikna með því að krónan styrkist þegar fram í sækir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×